Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Blaðsíða 1
1
FRÁ FUNDI PRF.STA,
16. sept. 1846.
r -------
A fundi, sem við áttum með okkur 16. dag sept-
embersmánaðar í fyrra, voru helstu samþykktir
okkar þessar:
1. Að veita inntöku í félag vort prestunum í Dala
syslu prófastsdæmi, eptir tilmælum herra pró-
fasts Jorleifs Jónssonar í Hvammi, og ásamt
þeifn halda samkomu að sumri á þeim stað og
tíma, sem síðar verður tiltekinn.
2. Að við skyldum fá mann til að bera bréf, bæk-
ur og böggla innanum prófastsdæmið í hverjum
mánuði vetrarlángt *)
3. Að við eptirleiðis gefum prestsseðla svo greini-
lega sem verður, um allt ástand þess, er prests-
seðil tekur, og nákvæmlega lýsum, ekki ein-
úngis aldri hans, heldur og hvernig hann að
*) jiessi maður hefur síðan á veturnóttum byrjað ferð sína
í byrjun hvers mánaðar frá Staðastað, gengið síðan hrínginn
í kríng milli prestanna í prófastsdæminu, og komið aptur að
Staðastað í enda sama mánaðar, og er hann nú búinn að
bera yfir 150 bréfa í allt. Jietta hefur orðið okkur bæði til
gagns og gamans, og er bundið svo litlum kostnaði, að við
viljum mæla fram með því við embættisbræður okkar útí frá.
1