Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Blaðsíða 51

Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Blaðsíða 51
51 og í mörgum sálnmm er skáldskapurinn svo óvið- feldinn og styrður, að tilfinníngarnar eru orðnar brotnar og brenglaðar, þegar þær loksins koma í ljós, og eiga því svo bágtmeð að vekja viðkvæmar tilfinningar hjá söfnuðinum; því guðsorð verður að koma frá hjartanu, eigi það að ná til hjartans." Eptirlánganin eptir nýrri, fullkomnari og betri messusaungsbók er því orðin svo innileg og almenn, bæði hér og annarstaðar á landinu, þar sem vér til- þekkjum, að vér treystumst til, að bera þá bæn upp, ekki einúngis í voru, heldur og ótal annarra nafni, að vor heiðraði Byskup vilji gángast fyrir því, að nú þegar verði farið að yrkja upp á nýan stofn, ogsafna sálmum til nýrrar messusaungs- bókar. í því skyni dyrfumst vér að biðja hann, að rita öllum próföstum á landinu, og bjóða þeiin að safna nýum sálmum frá hinum betstu skáldum í hverju prófastsdæmi, og sendaþá nefnd manna, er Byskupinum þóknaðist að setja, til þess bæði ,’að dæma um þessa sálma, og eins það, hverjir eldri sálmar skuli takast i þá hina nýu sálmabók. Vér teljum það sjálfsagt, að allir, sem eru fær- ir um að yrkja sálma, muni gjöra góðan róm að þessu máli, og leggja það til, er þeir geta. Margir sálmar í sálmabók þeirri, sem nú tíðkast, munu og vera þess maklegir, að fá sæti í hinni nýu messu- saungsbók. Sömuleiðis er það ætlan vor, að vér eigum marga ganda ágæta sálma í hinum eldri bók- um, sem með lítilfjörlegum breytíngum mætti taka

x

Ársrit presta í Þórsnesþingi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit presta í Þórsnesþingi
https://timarit.is/publication/68

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.