Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Page 28

Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Page 28
28 greinina, eða sama versið alla sína æfi, án þess að vita, livað það þýðir, þó þetta sé í sjálfu sér svo ljóst, að hverr heilvita maður geti ekki annað enn skilið það, ef liann einúngis gætir að því. 5etta kemur til af því, að únglíngurinn venst ekki í tíma á, að hafa tilhlýðilega eptirtekt og athygli á þvi, sem hann lærir, en fyrir það má girða með þeim hætti, sem áður er sagt, að barnið sé sem fyrst spurt úr því, því með því venst það einsog sjálfkrafa á, að hafá það yfir með þeirri umhugsun og gaumgæfni, sem það getur. 2) Hin önnur nytsemi, er barnið hefur af því, að það sé spurt úr þvi, sem það lærir, er: að það æfir skilníng þess, eykur greindarablið og hjálpar því til að ná skýrri þekkíngu á því er það nemur. Jetta leiðir beinlínis af eðli spurn- ínganna. 5eim sem spurður er, ríður á, bæði að skilja spurnínguna, (þ. e. að skilja þýðingu hennar og tilætlun), og að geta fundið lientugt svar uppá hana. Hvorutveggja þetta æfir skilninginn, livessir greindina, og hjálpar til að ná fjósari þekkíngu á því, sem barnið nemur. Að sönnu eiga spurníngarn- ar að vera svo ljósar, að sá, sem spurður er, þurfi ekki lengi að grubla eptir þýðíngu þeirra; en þó þær séu auðskildar í sjálfum sér, getur þó verið, að ekki sé svo hægt, að leysa rétt úr þeim; en um- liugsan sú, sem svarið lieimtar, og sú rannsókn á efninu, sem það leiðir til, hjálpar til skilníngsauka, og til að ná skýrri þekkíngu á því sem um var spurt. j>að ber og optast við, að útaf spurníngun- um, eða andsvörunum, vaknar nokkur umræða um efnið milli kennarans og kennslubarnsins, og þessi umræða miðar einmiðt til að skýra efnið, og gjöra það ljósara. "Því er eins háttað fyrir þeim, sem þannig fræöist, einsog manni þeim, er ráfað liaföi í

x

Ársrit presta í Þórsnesþingi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit presta í Þórsnesþingi
https://timarit.is/publication/68

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.