Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Blaðsíða 18

Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Blaðsíða 18
18 una og í henni, j>á sjaldan messaft var, og kvartar hann undan jtví' í bréfi sem hann reit prófasti sínum á latínu, skömmu eptir að hann kom til brauösins; firéfiíY var síðar prentað, ásamt fleirum ritgjörðum hans, og kemst hann þannig að orði, sem nú skal segja, þegar hann er búinn aö lýsa ýmsu öðru, sem honum þótti fara óskipulega: ---------„Finnst yður ekki, tignaði herrabróð- ir! von til, að inér bregði við þetta og annað þvíumlíkt, eptirþað sem eghefi áður vanist? en ekki svíður mér hvað minnst háttsemin við kyrkjurnarog í þeim: Eg kem aldrei seinna á kyrkjustaðina, enn, þá góð stund er til hádegis, og er þá tilbúinn til að messa, því eg Vil ekki að seinna sé tekið.til, síst á vetrardag, en þá er optastnær einginn kominn af sóknarmönnum, [>ó hagar svo til, að til ferða minna sést af mörgum bæum; svo bíð eg þarna; það fer þá bráðum að smátínast, uns að lokum verður messufært, en svo dræmt, að opt verður ekki tekið til fyrr enn á miðmunda; stundum verð eglíkaað farasvobúinn heim aptur,í þúnguskapi; eg hefi vandað um þetta með hógværum orðum; sum- ir hafa tekið vel undir, aptur aðrir óskynsamlega, sem við má búast, einn eða tveir liafa líka svarað mér því í skopi, að þeir væri að bíða eptir sýslu- manninum, til að riða með lionum; en kæmi allur þorri ekki optar enn hann, þá þyrfti eg ekki að semja prédikun til hverrar heIgar,honum er líka nokk- ur vorkun, meðan hann ekki skilur norrænuna til hlýtar, þvi liann er þjóðverskur, einsog yður er kunn- ugt; enn, sem konvið er, lendir allt við sarna; syo þegar loks er nú orðið messufært, þá geng eg út i kyrkjuna, og eru þá ætíð nokkrir settstir í framkyrkj- unni eöur upp á lopti; eg fer þá að gánga um gólf i kórnum, meðan djákninn er að kveikja o. s. frv., þá þykir mér opt og tíðum orðræður og athæfi

x

Ársrit presta í Þórsnesþingi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit presta í Þórsnesþingi
https://timarit.is/publication/68

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.