Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Qupperneq 20

Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1847, Qupperneq 20
lyrir embætti, sumir fara að gjöra [»etta undir saungn- um, en þá ber minna á; svo ernú líka farin að tiðk- ast hér tóbaksneytsla, ogberekkí síst álienni undir embættisgjörð í kyrkjunum; þegar lítið eitt fer að sæk- ja fram í prédikun, [)á eru ýmist teknar upp dósir eður baukar; eg læt nú vera þó hverr tækií nefið sér, svo litiö á bæri, en því er ekki þannig varið; þegar eig- andinn er búinn að hressa sig, réttir hann sessu- naut sínum, svo þegar þessi er búinn og ætlar að skila ílátinu aptur, hnippir eigandinn i liann, til að láta næsta mann fá hressingu, bendir síðan þessum til að láta gánga enn lengra, og slíku fer fram, uns komnir eru, ef til vill, einir 7 eða 8, svoverður opt að lokunum að rétta dósirnar eða pontuna yfirum þvert kór - gólf, gráður eða jafnvel alltarið sjálft, að eigandanum aptur; opt eru mörg ílátálopti í einu, og má nærri geta, að þessi háttsemí ásamt snýtunum, sog- inu og hnerrunum semhér afíljóta, muni ekki stuðla til að taka eptir oröinu, sem fram er flutt*). Sum- ir hafa þann ósið að spretta á fætur undir miðri pré- dikun, gánga út fyrir kyrkjudyr og dvelja þar stúnd- arkorn, og það þó þeir sé nýkomnir inn; auk þess sem þeir missa mörg orð, og kunna að týna öllum þræði ræðunnar sjálfir, glepja þeir fyrir mörgum öðrum; eg liefi opt verið að hugsa um, hvort, eyr- indi þessir menn mundu hafa svo brýnt út undir prédikuninni, hvað 'eg á að halda, veit egekki, því ekki ber á að þeim verði íllt, sjaldan er og ofheitt í kyrkjum hér á Ilálogalandi, djáknarnir sjá og urn að opnaður sé gluggi, ef svoverður; ekki gánga þeir *) Nokkru áður enn eg kom liíngað höfðu sumir líka tek- ið up[i brennivíns ílát og hoðið hverr öðrum, einkum í fram- kyrkjunni, og presturinn ekki farið varhluta af þeim veitíngum, að djákninn seigir; en við svo stórkostlegt hneixli hefir ekki orðið vart, síðan konúngurinn iagdi sektir við [>að um árið: en eru tóbaksgjafirnar öllu betri?

x

Ársrit presta í Þórsnesþingi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit presta í Þórsnesþingi
https://timarit.is/publication/68

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.