Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1850, Page 4
4
2. SKIP SKAÐAR.
3>etta árí Vestfirðingafjórðúngi veiteg ei aðra skip-
skafta en |)essa: 1) bátur týndist frá Otrardal íArnar-
firði 22. dag marzm. í byljóttum útsynníngsbrofta; þar
týndist presturinn séra Ólafur Pálsson og úngmenni
tvö, sonur hans Jórarinn og systursonur bans, Árni
Vídalín. 2) Róftrarbátur með 6 mönnum týndist við
landtöku 8. dag septbrm. við Ingjaldssand hjá Dýra-
firði, þá er liann i uppgángshvassviðri komafróðri;
formaðurinn hét Eiríkur, og urðu þar að sögn 5
ekkjur. Smiður nokkur, að nafni Jón Guðnason,
Einarssonar frá Harastöðum, drukknaði í Rifsós
29. dag desembrm. f. ár.
3. LÁT HELDRAFÓLKS.
1) Búi prófastur Jónsson á Prestsbakka dó 26.
desembr. 1848 úr brjóstveiki, 44 ára gamall. Hann
var bóndason frá Hnúki á Skarðsströnd í Dalasýslu,
gæddur miklum lærdómsgáfum. Hann útskrifaðist
úr skóla 1829, og var um tíma barnakennari og skrif-
ari hjá sýslumanni Bonriesen i Rángárvallasýslu,
uns hann vigðist 3. dag okt. 1830 til aðstoðarprests
að Hvammi í Norðurárdal. Eptir fiað var honum,
23. dag apr. 1836, veitt Prestsbakkabrauð í Strand-
asýslu, og þjónaði þar þvi prestsverkum nærfelt 13
ár, en prófastsverkum í Strandasýslu í 12 ár.
2) Ólafur prestur frá Otrardal, sonur Páls Iljálm-
arssonar, er var síðastur rektor við Hólaskóla, og
seinast prestur að Stað á Reykjanesi. Hann drukkn-
aði 22. dag marzm., sem áður er getið, og hafði þá
verið sóknarprestur í Otrardal 16 ár.
3) Bogi Benedictsen á Staðarfelli, fæddur 24.
dag septbr. 1771, dáinn 25. dag marzm. 1849 af elli-
hrumleik, á 78. aldurs ári. Hann var sonur Bene-
dicts stúdents Bogasonar prentstjóra í Hrappsey,