Fréttir frá Íslandi - 01.01.1885, Síða 17
ÓNNUR INNANLANDSSTJÓRN.
19
|>essar opiiiberar sýslanir vóru veittar:
Yið landsbankann fyrirhugaða:
Halldóri Jónssyni, kand. theol. í Reykjavík, var veitt féhirðis-
sýslanin 27. nóv., og sama dag
Sighvati Bjarnasyni, landshöfðingjaskrifara, bókara-sýslanin, enn
24. okt. hafði landshöfðingi veitt
L. E. Sveinbjörnson, yfirdómara, framkvæmdarstjóra-sýslanina.
10. mars var Jón Sigurðsson, alpingismaður á Gautlöndum,
skipaður umboðsmaðar yfir Norðursýslu- og Reykjadalsjörðum
og 3U Flateyjar, enn
29. ágúst var Asmundi Sveinssyni stúdent, umboðsmanni
Arnarstapa og Skógarstrandar umboðs og jarðarinnar Hallbjarn-
areyrar, vikið frá þeirri sýslan fyrir vanskil, og kaupm. og al-
pingismanni Holger Clausen s. d. falið á hendur pá fyrst um
sinn að innheimta ógreitt jarða-afgjöld, enn síðar (7. nóv.) var
verslunarstjóri S. Richter settur umboðsmaður þessara jarða til
fardaga 1886. — N. S. Krtiger lyfsali var viðurkenndur af kon-
kgl. hollenskur konsúll í Reykjavík 24. júlí.
— Prestvígðir vóru:
Ólafur Ólafsson, kand. theol., 6. sept., og s. d.
Pálmi J>óroddsson, kand. theol., (til áðurnefndra brauða); og
Stefán Jónsson, kand. theol., 19. apríl, sem aðstoðarprestur til
Stefáns prófasts þorvaldssonar í Stafholti.
Yið árslokin vóru 15 prestaköll óveitt.
— Heiðursmerki: Jón Ólafsson, útvegsbóndi í Hlíðarhúsum i
Reykjavík, fékk heiðursmedalíu fyrir björgun manna úr sjávarháska (13.
nóv. 1883), og Jóhann Gunnlaugsson, formaður fyrir eyfirðsku hákarlaskipi,
fékk vandaðan sjónauka frá Bretastjórn fyrir björgun á manni frá ensku
hvalveiðaskipi. 14. apríl var landshöfðingi Bergur Thorberg sæmdur af
konungi kommandörskrossi dannebrogsorðunnar á 2. stigi, og s. d. var séra
Magnús Bergsson í Heydölum sæmdur riddarakrossí dannebrogsoröunnar
og bændurnir Erlendur Pálmason í Tungunesi í Ilúnavatnssýslu, Jóhannes
þorgrímsson á Sveinseyri við Tálknafjörð og Eiríkur Eiríksson á Reykj-
um á Skeiðum, og sjáli'seignarbóndi og kaupmaður Jón Árnason í porláks-
höfn sæmdir heiðursmerki dannebrogsmanna, og 16. júlí var Sigurður Mel-
steð, forstöðumaður prestaskólans, sæmdur heiðursmerki dannebrogsmanna.
III. Samgöngur.
Póstgöngur og gufuskipaferðir. — Yeggerðir. — Brúamál.
Póstgöngurnar og guíuskipaferðiruar póttu ganga nokkuð
2*