Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Side 4
4
fornleifafjel. 1888—92, bls. 120. línu 4. er þar stendur: «hafl ekk-
ert vatn verið», . . á víst að vera; hafl eitthvert vatn verið].
Hof. sst. «Ingiraundur kaus sjer bústað í hvammi einum «
fögrum .... hann reisti hof mikit hundrað fóta langt* . . Bær-
inn Hof stendur milli holta tveggja, er ganga fram undan fjalls-
hlíðinni þvert vestur í dalinn. Milli þeirra ofan til ganga önnur
tvö smáholt fram, sem ná eigi nema ofan að túninu. Mynda
þessi fjögur holt fagran hvamm, sem bærinn og túnið er í. Milli
allra holtanna eru lautir, sem leysingarvatn rennur í, er flytur
með sjer aurburð, svo þar af þykknar jarðvegurinn smátt og
smátt. Syðra miðholtið er stærra, og eru á því fjenaðarhús; hið
nyrðra er að eins lítill hóll. Hann heitir Goðhóll, og er sagt að
hofið hafl staðið á honum. Fornt garðlag, digurt mjög, liggur í
boga eptir honum norðanverðum, og beygjast báðir endarnir að
lautinni, sem þar er sunnan við milli smáholtanna. Mun þetta
hafa verið hringmynduð girðing, og hefir suðurhluti hennar leg-
ið f lautinni, en jarðvegur þar hækkað vegna árennslis og hulið
þann hluta garðsins. Þessi girðing má hafa verið í kring um ■*
hofíð. Engin glögg merki sjást ’samt til hofsins; en það er mjög
skiljanlegt: Þar er allt byggt úr torfi, þvf hleðslugrjót er ekki
til nærri. Sá munur hefir nú verið á garðinum og hoflnu, að
garðurinn hefir fláð (o: verið uppdreginn) og þvi getað gróið og
staðist storma; en veggir hofsins hafa staðið lóðrjett upp og þvi
ekki getað gróið, þornað svo upp og blásið burt, er hætt var að
halda þeim við. Mundi því til einkis að grafa þar.
Oddsás (Oddaás ?): kap. 21. «Ingimundur byggði þeim Hroll-
eifl . . . bæinn f Ási. (Lndn. »ok setti þau niðr í Oddsás, gengt
Hofi»). Bærinn Ás stendur sunnan í ásnum, sem hann heflr
nafn af. En ásinn er ekki annað en melholt, sem stendur vest-
an megin árinnar lítið sunnar en móts við Hof. Skammt fyrir
neðan túnið í Ási gengur hvammur frá ánni vestur í holtið og
skiptir því i tvennt að kalla má, svo að þar geta heitið tveir
«ásar», og er hinn nyrðri mjög svo gengt Hofi. Hann hefir ver-
ið kallaður Oddsás, — eða þó heldur Odda-ás af lögun sinni: 4
Áin hefir gert bug inn í hvamminn”og svo aftur annan bug út-
fyrir ásinn, svo hann hefir myndað þar odda, má sjá þetta á
gömlum farvegi sem þar er enn. Hefir þar verið hylur í ánni,
því enn er þar síki, sem marhálmur (Hippuris vulgare) vex f.
Norðurhlið hvammsins, sunnan í Odda-ásnum, er fögur grasbrekka,
sem er kölluð LjótunnarJcinn. Það nafn hefir án efa myndast úr:
Ljótarkinn, er hefir verið kennd við Ljót raóður Hrolleits; en á
4