Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Page 13
33
er kringlótt girðíng, tæpura 100 föðraum ofar en bæjarrústin: sú
girðing er 20 faðmar í þvermál. Innan i henni er upphækkun,
sem líkist tóftar leifum; hún er aflöng, en mest niður sokkin ura
miðjuna. Öðrum megin við hana er lítil tóft út við hringinn,
eftir einhvern smákofa frá seinni öldum. Varla er hægt að
hugsa sjer, til hvers þessi kringlótta girðing hafi verið ætluð,
nema ef hofið heflr staðið íhenni; og annað hvort hefir það líka
hlotið að vera þar, ellegar bærinn hefir verið settur ofan á hof-
tóftina. Ekki er til neins að grafa i þessar rústir. Grjót er þar
ekkert, sem til bygginga verði notað. Fyrir ofan rústirnar er
halllend mýri, eu fyrir ofan hana móaholt. A því austan til er
steinn, sem kallaður er blótsteinn. Hann er að norðanverðu nál.
3 álnir á hvern veg, en svo er hann uppdregin tveim megin og
hryggmyndaður ofan. Á hæð er hann nálægt 2'/a alin. Vega-
lengd þangað frá »Hofinu« mun vera á 4. hundrað faðma. Hvort
lögun steinsins hefir gefið tilefni til þeirrar sagnar, að hann hafi
verið btótsteinn, eða svo hefir verið í raun og veru, skal jeg láta
ósagt. Eigi er heldur hægt að segja með vissu, hvort hjer hefir
verið höfuðhof, eða að eins heimahof þeirra Melsmanna. Eigi
er óliklegt, að þeir Miðfjarðarskeggi og Ögmundur, faðir Kormaks,
hafl reist hofið í sameiningu, og hafi það síðan orðið höfuðhof
vestasta goðorðsins í Húnavatnsþingi.
Gnúpsdalur. Ekki er hægt að segja með vissu, hvar bær-
inn Gnúpsdalur hefir verið. Þorkell, faðir Steingerðar, bjó í
Tungu, sem án efa er Gnúpsdalstunga, en Steingerðr var fóstr-
uð í Gnúpsdal. í fljótu áliti sýnist svo, sem þá hafi að eins einn
bær verið frammi í dalnum, og heitið Gnúpsdalur. En af Grett-
issögu, k. 11., sjest, að Gnúpur í Miðfirði var byggður tyrir þann
tima. Auk þess eru þar í dalnum forn eyðibæjanöfn: Njálstaðir,
Barðastaðir, Daðastaðir — Þverá og Fosskot eru ekki fornbýli. —
Það mun því standa eins á með Gnúpsdal, bæði í Kormakssögu
og Heiðarvígasögu, eins og með Þjórsárdal, bæði i Njálu og
Landnámu: að sagnaritararnir hafa látið sjer nægja að nefna
dalinn, án þess að tilgreina bœinn í dalnum, þann er um var að
ræða.
Sveinsstaðir i Miðfirði, þar sem Þórveig bjó, hafa staðið á
sömu brún sem »Hofið« stendur á, iitium spöl utar. Nú hefir sá
bær verið í eyði langan tíma, en nýlega er nú aftur gerður þar
bær og kallaður »á Barði«. Það er hjáleiga f'rá Melstað.