Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Side 25
25
3. Það er ékki HJclegt að Þóroddur hafi hyrjað húskap á Hjalla.
4. Hof hefir verið að Hrauni.
Að þessum ástæðum liggja þau rök er nú skal greina.
1. Það hefir eJcki legið nœrri, að jarðeJdur hlypi á Hjalla.
Flestir ætla að jareldurinn, sem Kristnisaga getur um, að hætt
þótti við að »mundi hlaupa á bæ Þórodds goða«, hafí verið hraun-
kvísl sú, er myndaði Þurárhraun. En frá Þurárhrauni er nær-
felt miluvegur vestur með fjallshlíðinni út að Hjalla. En hraun-
kvíslin stefnir ekki einu sinni i áttina til Hjalla, úr því hún fell-
ur ofan af fjallinu. Hún hefir fossað ofan um tvö skörð í fjalls-
brúninni fyrir austan Þurárhnúk, og fallið til suðurs beint undan
hallanum ofan á láglendið. Og þó menn hefði búizt við, að eid-
urinn kynni að aukast og falla vestur af Þurárhnúk, þá er þar
fyrir slakki mikill og þaðan ærinn halli til suðurs ofan á lág-
lendið, sem eldflóðið hefði orðið að renna eltir. Það hefði ekki
getað runnið utan 1 hallanum til hliðar vestur eftir, sem það hefði
þó orðið að gera, ef eldurinn hefði átt að hlaupa á Hjalla. Það
er því engan veginn líklegt, að fólk á Hjalla hafí orðið verulega
hrætt um, að Þurárhrauns-eldflóðið mundi hlaupa þangað á bæ-
inn. Seinni tíðar menn urðu samt að hugsa sjer það svo, úr því
þeir töldu vist, að um Hjalla ^beri að ræða og vissu ekki af
öðru hrauni þar nær, en Þurárhrauni. Hinu hafa fáir veitt eft-
irtekt, að ofan á binu fornlega Lambatellshrauni, fyrir vestan
Hjalla, liggur nýleg hraunkvisl, að líkindum yngri en bygging
landsins og engu ólíklegri en Þurárhraun til þess, að vera frá
árinu 1000, eins og Þorvaldi Thoroddsen þykir líka sennilegt, þó
hann fullyrði það ekki. Það er ekki svo undarlegt, þó þeirri
hraunkvísl hafi eigi verið veitt almenn eftirtekt, hún liggur ofan
á fornu hrauni, en þar hafa víst fáir átt leið um af þeim, sera
ljós var aðgreining gamalla og nýrra hrauna; annars hefðu menn
líklega ímyndað sjer, að það hefði verið hún, fremur en Þurár-
hraun, sem Hjallamönnum heíði staðið ótti af. Hún hefir komið
norðvestan af heiði, breikkað svo og beygt austurávið er hún
rann yfir Lambafellshraunið, svo að þaðan sem hún hefir komist
austast, er stutt bæjarleið austur að Hjalla. Samt liggur Lamba-
fellshraunið þar lægra en Hjalli, og því hallar til suðausturs, svo
auðsjeð var, að eldurinn mundi hlaupa í þá átt, en ekki heim
að Hjalla.
2. Jarðeldur hefir hlaupið að hœnum Hrauni. Hraunhvislin,
sem nú var talað um, hefir hlaupið suðaustur yfir Lambafells-
hrauuið og austur af brún þess, milli Hrauns og Grímslækjanna,
4