Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Page 27
27
manns. Af Harðarsögu er svo að sjá, sem þeir hafl verið þing-
menn Grímkels, en líklega er það svo að skilja, að þeir hafi átt
mannaforráð um Ölfusíð, en verið samgoðar Grímkels, og hanu
farið raeð goðorðið en þeir fylgt honum að málum. Þá er mála-
ferli Grimkels urðu, heflr Eyvindur verið um flmmtugt, en Þór-
oddur rúmlega tvítugur. Eigi heflr það samt veríð mörgum ár-
um siðar, að hann fór að búa, því, eins og fyr er bent á, heflr
hann verið kvæntur og búsettur 960. En af engu verður það
ráðið, að Eyvindur hafl þá verið dáinn eða hættur búskap, um
það er ekkert getið. Og þegar svo stendur á, verður að ganga
út frá því, að allt hafi gengið venjulegan gang. Eyvindur hafl
komist að sjötugu og búið að Hjalla til dauðadags, eða framund-
ir 978. Samkvæmt þessu heflr Þóroddur hlotið að byrja búsTcap
annarsstaðar en á Hjalla. Og þar heflr hann svo búið allt að 10
árum áður en faðir hans dó. En við dauða hans tekur hann
fyrst við búinu á Hjalla. Þá höfðu höfðingjar oft fleiri bú en
eitt; og er engin ástæða til að ætla, að Þóroddur hafi lagt hið
fyrra bú sitt niður, þó hann tæki við hinu; má telja hitt sjálf-
sagt, að hann hafi nú átt bæði búin og stjórnað þeim báðum.
Því heflr hann nú setið að Hjalla öðru hvoru. En þegar Skafti
son hans var fulltíða og kvæntist (hjer um bil 990) hefir Þór-
oddur fengið honum i hendur búið að Hjalla, en sjálfur haft
hið fyrra bú sitt eftir sem áður. Þannig liggur næst að hugsa
sjer þetta.
4. Hof hefir verið að Hrauni. Yzti oddi hins nýja hrauns,
norðan megin við lágina, heítir Hofið, og eyðihjáleiga sem þar
var uppi á hraunsnefinu, lijet Hrauns-hof, eða eins og hún var
vanalega nefnd «i Hofinu*. Þetta sýnir, að hof hafi verið á
Hrauni í heiðni. Hofrúst sjest þar raunar ekki; hraunið mun
hafa hlaupið fram yfir hofið, en þó eigi lengra en svo, að menn
hafa vitað hjer um bil hvar það lá undir. Raunar hafa sumir,
sem jeg hefi átt tal við um þetta, gizkað á, að þetta örnefni
væri tilbúningur seinni tíma, þar eð hofsins sjást engin merki.
En það er mjög eðlilegt, að hofsins sjáist engin merki; hitt er
óeðlilegt, og naumast dæmi til, að slíkt örnefni hafi verið búið
til «af' engu» og náð að festast við staðinn. Enda heflr þetta
örnefni hjá Hrauni verið til frá ómunatíð. Og það er hið eina
örnefni í þessu byggðarlagi, sem kennt er við hof. A Hjalla er
ekkert slíkt örnefni. Má þó nærri geta, að Þóroddur gðði heflr
haft hof á bæ sínum. En um Eyvind er það helzt að ætla, að
hann hafi lítill blótmaður verið, og eigi sýnist hann hafa borið
4*