Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Qupperneq 43
Skýrsla.
I. Aðalfundur fjelagsins.
Aðalfundar fjelagsins fórst fyrir á ársdegí þess, en var svo
haldinn 12. okt. 1895. Formaður skýrði frá, að Árbók fjelagsins
væri undir prentun og kæmi þar meðal annars skýrsla um rann-
sóknir Brynjólfs Jónssonar sumarið 1894; í sumar hefði Brynjólf-
ur einkum rannsakað fornar byggðaleyfar í Árnessýslu otanverðri,
í Mý/asýslu og á Fellsströnd, og kæmi skýrsla um það í næstu
Árbók; ennfremur kostaði Brynjólfur jafnan kapps um á ferðum
sínum að spyrja upp forngripi og hvetja menn til að halda þeim
til Forngripasafnsins, enda hefði safnið lagt styrk til ferða hans.
Fram var lagður endurskoðaður reikningur fjelagsins fyrir næst-
liðið ár. Samþykkt var, að gefa fjelagsmönnum kost á, að kaupa
Árbækur fjelagsins frá upphafi til 1893 incl. fyrir 8 kr. og hverja
einstaka Árbók fyrir 1 kr. 50 a. Ennfremur var samþykkt, að
nema úr fjelagatölu nokkra menn, sem eigi hafa gjört fjelaginu
nein skil í langan tíma; flestir þeirra eru í útlöndum (Ameríku)
og ókunnugt um verustað þeirra. Með því að fundurinn var fá-
mennur var samþykkt í einu hljóði, að hin fyrverandi stjórn
hjeldi störfum sinum til næsta aðalfundar, án þess að regluleg
kosning færi fram. Kand. Þorsteinn Erlingsson hjelt fróðlegan
fyrirlestur um rannsóknir sínar í sumar á fornum bæjarústum.
II. Reikningur fjelagsins 1894.
Tekjur:
1. í sjóði frá f. á...............................kr. 842,29
2. Tillög og andvirði seldra árbóka (fylgiskj. 1.) . — 456,70
Flyt: kr. 1298,99
6*