Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Page 17
17
24. Grdkollustaðir eru og taldir til Gunnarsholtstorfunnar ;
þeir stóðu út við Rangá, litlu otar enn á móts við Árbæjarhelli
i Holtum. Þar sér nú ekki til rústa, en blásið hafa þar upp brot
úr kvarnarsteini.
2o. Staðarkot var við Rangá móts við Snjallsteinshöfða-
hjáleigu. Það eyddist af sandtoki 1788. Grastorfa hylur rústina
að nokkru.
16. Ketilhúshagi hét bær, alment nefndur Ketla, er
stóð norðan við Ketlulæk mots við Kirkjubæ. Hann lagðist í eyði
af sandfoki 1882. Þó er túnið enn slegið og landspilda notuð.
Um þenna bæ hafði mér áður komið það i hug, að nafn hans
gæti varla verið upprunalegt, eins og það er nú baft. Gæti varla
hjá þvi farið, að bærinn hefði áður staðið á öðrum stað og þá
lieitið Ketilhús (eða Ketilshús, og .s-ið svo fallið úr), en síðan verið
fluttur út i hagann, og -hagi þá bæzt aftan við nafnið. Um þetta
leitaði ég upplýsinga hjá ýmsum; en enginn kunni að segja mér
neitt um það. En Bogi bóndi f Varmadal, Þórðarson bónda f
Ketlu, sagðist á yngri árum oft hafa smalað út með læknum, og
þá tekið eftir rústarbroti á nefi einu við lækinn yzt í Ketlulandi,
og hefði faðir sinn eigi vitað nafn hennar. Var Þórður þó fróður
maður. Bogi sýndi mér rúst þessa. Var hún nú eigi orðin annað
enn grjótdreif og sumt grjótið lirapað i iækinn með aurrennsli,
En nú tókum við eftir þvi, að rústirnar voru tvær, sin á hvoru
nefi, sem eru hvort lijá öðru að kalla. Þótti mér líklegt, að
annað væii bæjarrúst, • en hitt fjós og heystæði. Ellegar, ef til
vill, að bærinn hefði fyrst verið færður þenna litla spöl, en síðan
lengra austur með læknum í beitilandið eða hagann, þar sem
Ketla var síðast; — því ekki þótti mér annað lfklegra, enn að
allt væri sama býlið, og að nú væri gátan ráðin. En það, að
nafnið Ketilhús var gleymt, þóttí roér benda til þess, að mjög
muni langt síðan, þessi flutningur vaið. Ég set þetta fram hér
öðrum til athugunar.
27. Gröf hét bær á undirlendinu norðanmegin við Varma-
dalslæk litlu ofar enn móts við Varmadal. Bærinn hefir staðið
undir frálausri hæð, og er túnið og rústin óblásið að mestu, og
engi mikið þar fyrir neðan, en hagarnir, sem verið hafa fyrir
ofan, eru örblásnir. Gröf var síðast bygð 1798.
28. Grafarbakki hefir verið hjáleiga frá Gröf, var stuttum
spöl fyrir ofan hana og stóð uppi á brúninui, þar sem nú er alt
örblásið, þó er rústin að nokkru leyti undir grastorfu, og engið
er óblásið fyrir neðan með læknum. Grafarbakki var síðast
bygður 1787.
8