Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 44
Skýr sla.
I. Ársfundur félagsins.
Ársfandur félagsins var haldinn 18. okt. 1898. Formaður
skýrði írá hinu helzta, er koma mundi í Arbók félagsins, er
þegar væri að mestu prentuð; jafnframt gat hann þess, að 1 þetta
sinn hefði orðið að gevma til næsta árs framhald af ritgjörð eftir
rektor Björn M. Olsen um legsteina og grafskrifcir, vegna þess,
að Árbókin hefði þá orðið of kostnaðarsöm, en félagið hetur ann-
ars vegar haft töluverðan kostnað við hlutdeild sína i útgáfu
fylgiritsins við Árbókina; af sömu ástæðu hefði og orðið í þetta
sinn að sleppa að prenta myndir af hlutum á Forngripasafninu,
svo sem venja hefur verið að undanförnu. Brynjólfur Jónsson
hafði í sumar eins og að undanförnu unnið i þjónustu félagsins;
hafði hann farið rannsóknarferð um austurhluta Barðastrandar-
sýslu og verið þar með kapteini D. Bruun við útgröft á fornum
dysjum á Reykjanesi.
Fram var lagður endurskoðaður reikningur félagsins fyrir
1897 og hafði eigi verið við hann gjörð önnur athugasemd en
að eigi hefðu verið innheimt tillög i Reykjavík á árinu, en því
var svarað, að þetta væri eðlileg afieiðing af' því, að Árbókinni
hefði i þetta sinn eigi getað orðið útbýtt meðal féiagsmanna fyr
en eftir nýjár, en venja hefur verið, að innheimta tillögin um
leið.
Að lokum urðu umræður nokkrar um hver ráð væru til að
auka útbreiðslu félagsins.