Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 24

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 24
24 moldar undirlagi. Suðausturendi hennar er horfinn í árburð úr Fiská, og hefir hún að öllum likindum brotið burt nokkurn hluta bæjarins, um leið og hún heflr eytt engið og mikið af túninu. Hún er nefnil. á þessum stað reglulegt auravatn; en þau kasta sér til ýmsra hliða, eftir þvf sem þau bera árburðinn undir sig. Af þessu mun bærinn hafa lagst í eyði. Raunar hefir holtið (nú Reynifelhalda) blásið; en það mun hafa orðið síðar, þvi nýgræð- ingurinn þar lítur út fyrir að vera ungur. — Smáhlutir kváðu hafa fundist í rúst þessari. Auðunn Jónsson, vinnumaður á Reyni- íelli, fann þar koparhringjur af reiða og ætlar hann þær forn- gripasafninu. Likur þykja til, að Reynifell hafi ekki verið bygt fyr enn Hrappsstaðir og Holt voru komin í eyði. Þó hefir víða verið þjettbýlt til forna, og má ekkert um þetta fullyrða. C. Holtasveit. 1. Jólgeirsstaðir, þar sem Jólgeir landnámsmaður bygði, hafa lagst í eyði af sandfoki, sem hefir tekið sig upp við Steins- læk framundan Efri-Hömrum eða litlu vestar. Hefir þar blásið upp allstór landspilda frarn með vesturbrún hæðar þeirrar, sem As og fleiri bæir standa á. Er rúst Jólgeirsstaða næstum fremst á sandinum, skamt austur f'rá bænum Seli og spölkorn austur frá Asmundarstöðum, sem standa í hæðarbi úninni. Jólgeirsstaðir hafa staðið að eins laust frá hæðinni. Hin uppblásna spilda heit- ir Jfjlgeirs>itada>iandur; er hún örblásin ofaní grjótmöl alt fram að rústunum. Þar setn bærinn stóð er þó ekki allur jarðvegur blás- inn burt. Þykkur moldarbali er undir þeim hluta rústarinnar, sem virðist hafa verið frambærinn Sér þar fyrir undirstöðum hér og hvar, og sýnast hafa verið 4 hús í röð og snúið stöfnum fram, til suðausturs. Því svo virðist bærinn hafa snúið. Ait er það þó óglögt, þvi hið bezta af grjótinu hefir verið tekið upp og flutt heim að Seli. Undan afturhluta bæjarins er allur jarðvegur blásinn, og liggur grjótið i dreif á melnum; en hið bezta er flutt heim að Seli A hlaðinu hefir verið bænhús og kirkjugarður. Þar er öll mold blásin burt, en eftir er að eins grjótdreifir og litið af marinabeinaleifum. Guðmundur bóndi Ólafsson á Seli fann þar fyrir fám árum heila höfuðkúpu, og kom hann henni innundir

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.