Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Qupperneq 26
26
ar frá neinni hlið; skyldi helga hinura heilaga Marteini kirkjuna
og kenna bæinn við hann. Var þá reistur staður og kirkja í
Marteinstungu. Þar er foræðismýri kringum alt túnið. Norðan-
til í Pululandi var síðar reist smábýli, sem heitir Pula. Meiri
hluti landsins lagðist þó til Marteinstungu, en sumt tilKöldukinn-
ar. — I sambandi við munnmælin, um manndauðann í Pulu, er
það ekki ómerkilegt, sem sagt er, að Marteinstunga hafi fyrruin
verið kölluð Sóttartunga. Og bæjarnafnið Pula (= þraut) bendir
líka til þess, að þar hafl eitthvað bágt komið fyrir. En þá ligg-
ur líka nærri að hugsa, að Pulu-nafnið hafl myndast eftir að
bærinn var kominn í eyði, en að hann hafl heitið eitthvað annað
áður. Því miður mun ekki unt að vita neitt um þetta með
vissu.
3. Akbrautarholt er nefnt til þess, að ekkja Klofa-Torfa
hafi geflð það, ásamt Vindási og Hreiðri, fyrir kirkjuleg Torfa í
Skálholti. Akbrautarholt heflr tvisvar sinnum verið fært und-
an sandfoki. Stóð bærinn fyrst sunnan í háum ás, nál. hálfri
bæjarleið í suðvestur þaðan sem hann er nú. Asinn er samsett-
ur af stuðlabergsdröngum og lausagrjótið, sem er utan í honum,
eru molar úr því bergi. Er merkilegt að sjá í sárið á dröngum,
er brotnað hafa, þar eru hringmyndaðar rákir hver utan um aðra
likt og árhringar í tré. Drangarnir eru flestir 6-strendir; sumir
þó 5-strendir, og nokkrir 4 strendir og flatvaxnir. Meðallengd
þeirra er um 8 fet. Bærinn hefir staðið hátt uppi undir brún á
ásnum, en bænhús og kirkjugarður austur frá bænum og litlu
iægra. Kirkjugarðurinn er nál. 15 faðm. í þvermál. Bæði bæn-
húsið og norður- og vesturhlið kirkjugarðsins hefir verið bygt af
dröngum. Hafa þeir, að þvf er virðist, staðið hver við annars
hlið utanvert f veggjunum. Veggirnir hafa fyrst fallið innan til,
og drangarnir svo á þá ofan. Hefir þessi bygging vissulega þótt
merkileg á sínum tíma. Bænhústóftin lítur næstum út sem hrúga,
og liggur einn mikill drangi yfirum hana þvera framan til. Er
sagt hann hafl verið yfir dyrum. Þaðan liggur drangastétt að
sáluhliðinu, og heldur hún sér nokkuð, en sáluhliðið er fallið
saman. Austur- og suðurhliðar kirkjugarðsins eru meira úr lagi
gengnar; enda liggja þær lægra, og þar er færra af dröngum.
Mönnum hefir ef til vill þótt erviðara að færa þá þangað, því
það er lengra frá ásbrúninni, sem þeir eru teknir úr. Þó máog
vera, að sumir þeirra séu á seinni tímum dregnir á ís til annara
bæja. I bæjarrústinni er lltið um dranga, enda er hún mjög úr
lagi gengin. Eigi vita menn hvenær bærinn var færður af þess-
um stað. Þá var hann settur suður og austur á túninu, og þar