Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 8
8
vindurinn (uppblástur) liafa hjálpast til að brjóta jarðveginn af. Ög
frá þeirri hlið gengur sandblástur vestur á hana. Hún er sléttlend
og kölluð Baugsstaðaflatir. Fornt garðlag mikið liggur frá kambin-
um upp eftir fiötunum, þar til er rof taka við. Þar nálægt í kamb-
inum, eða þó heldur í fjörunni framanundir honum, heita Fomu-Baugs-
staðir, og er sagt, að þar hafi bærinn verið fyrrum. Þess sjást samt
engin merki, sem heldur er ekki von, og ekki geta menn vísað
nákvæmlega á, hvar bærinn hafi staðið. Það má líka nærri geta,
að kamburinn hefir ekki staðið alveg óhaggaður fyrir öllum sjógangi
öld eftir öld; hann heíir smámsaman orðið að láta undan síga, og
um leið hefir hvert það fornvirki, sem þar var áður, hlotið að
hverfa með öllu, — nema hvað garðlagið gefur bendingu um forna
túngirðingu. Hvergi á strandlengjunni mílli Þjórsár og ölfusár er
þvílíkur kambur, nema á þessum eina stað. Enda nær jarðvegur
hvergi jafnlangt fram sem þar. Má telja víst, að ef þar væri ann-
ar eins kambur með öllum sjó, þá væri þar engin teljandi landbrot
og áhrif lækkunarinnar lítt merkjanleg. Viðlíka gagn gera vel-
gerðir sjógarðar. Kamburinn er ekki langur; en fyrir vestan hann
breikkar fjaran aftur, og heldur þeirri breidd, svo að segja jafnri,
vestur að ölfusá. Skamt fyrir vestan kambinn heitir Knararós, og
er þar vorútræði Skipamanna. Mun þar liafa verið Knararsund,
sem Landnáma nefnir. Litlu vestar var útfall Skipár, er mun hafa
verið Grímsárós, sem Landnáma einnig nefnir sem höfn. Er eigi
hægt að gizka á, hvernig þá hefir hagað til. En bæjarnafnið: að
S'kipum — sá bær er skamt þaðan — bendir til þess, að þar hafi
á sínum tíma verið hafnarstöð og skipaferð, þó nú sýnist það eigi
líklegt. Eigi vita menn nú heldur, hvar Hásteinssund hefir verið og
ekkert örnefni bendir á það. En Hásteina-sund heitir vestanvert við
Ölfusárós, sem nú er, og er hætt við að Sigurður Vigfússon liafi
heyrt það nefnt og vilst á því (eða sögumaður hans), er hann segir
í Árb. 1882, bls. 57, »Hásteinssund lieitir enn fyrir austan Stokks-
eyri«, því þar segjast elztu menn aldrei hafa heyrt Hásteinssund
nefnt. En austan til framundan Kauðarhól hinum eystra er lægð
nokkur i fjörunni framan úr brimgarði upp að sandi. Mætti geta til,
að þar hafi Hásteinssund verið í brimgarðinum, og stæði það heima
við Landnámu. Vestanmegin við þessa lægð er klettabali nokkur
frammi í fjörunni; hann heitir Stjörnusteinar. Má þangað ganga
þurrum fótum um fjöru eftir klapparhrygg, sem þaðan liggur upp
að sandi og er kallaður Rifið. Er líklegt, að þar hafi jarðvegur
verið einna hálendastur meðan hann náði þar fram, sem fjaran er
nú. Því er og eigi ósennilegt, að bærinn Stjörnusteinar hafi staðið