Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 12

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 12
12 Er heimajörðin kölluð Stóra-Hraun, því ein hjáleigan heitir Litla- Hraun. Eftir það hafa þó flatirnar, þar sem Hraun var áður, gróið svo upp aftur, að fært heflr þótt að setja þar bæ að nýju. Sá bær heitir Gamla-Hraun, -— það sýnir, að bærinn, sem þar haf'ði áður verið, hefir heitið Hraun, — og stendur hann þar enn. Þar vestan við túnið var hjáleigan Salthóll, sem eyddist í Stóraflóði1) 1799. A flatirnar kringum Gamla-Hraun hera sjávarflóðin æ meiri sa-nd og möl, svo graslendið fer minkandi, einkum vestanmegin bæjarins og fram undan honum. Vorútræði er frá Gamla-Hrauni um Hraunssund, austanvert við Framnessboða. Til sundmerkis er þar haft tré, sem um miðja 19. öld stóð á grasbakka fram undan bænum. Og enn stendur það raunar á sama stað, en sá er munur- inn, að nú er það skorðað í fjörukletti, og er þaðan upp að gras- bakkanum meir en 60 faðma langur spölur um fjörugrjót. Sýnir þetta, hve sjórinn heldur áfram að brjóta af jarðveginum. Fyrir vestan túnið miðar honum þó enn meira; liklega af því, að þar eru fjöruklappirnar heldur lægri. Þá tekur við Háeyrarland, sem nú síðustu árin er varið með sjógarði. Einnig er nú byrjað á að verja á þann hátt Litla-Hrauns engjar vestur við Háeyrar-landamerkin og Stóra-Ilrauns engjar fyrir austan Gamla-Hraun. Jarðirnar Háeyri, Skúmsstaðir, Einarshöfn, Drepstokkur og Nes hafa allar legið á því svæði, sem Hásteinn gaf Hallsteini. Þó eru þær óefað landnámsjarðir, bygðar með ráði Hallsteins. Er ekki að marka þó Landnáma geti ekki um þau landnám. Hún sleppir svo mörgum landnámsbæjum, sem engin furða er. Hitt er öllu heldur furða, hve marga hún hefir náð að taka. Fyrir það mál, sem hér er um að ræða, gerir þetta heldur ekkert verulegt til. Sagt er, að milli Hrauns- og Háeyrarlanda hafi fyrrum runnið á, er hét Háeyrará; og svo heitir enn ós milli fjörulóna þar fram undan landamerkjunum. Sú á lieflr þá verið afrensli Litla-Hrauns- tjarnanna, en eigi Borgarlækur nema Stóra-Hraunstjarnanna, og get- ur það vel verið. Háeyrará heflr orðið fyrir sömu forlögum sem Skipá og Fúlilækur, og sjást nú engin merki til hennar. Þar iiall- ar landinu nú alstaðar inn að tjörnunum, því sjórinn heflr borið upp á það sand og möl og þannig hækkað það að framan, — en jafnframt fært ströndina undan sér. Svo er með Háeyri sem með Stokkseyri, að þar sést nú engin eyri, sem bærinn geti haft nafn af. En fyrrum hafa þar hlotið að vera eyra-myndanir. Það sýnir eigi einungis Háeyrar-nafnið, heldur ennfremur kaupstaðarnafnið: á Eyr- ') Frá Stóraflóði er nákværalega skýrt í „Kanibsránssögu“,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.