Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 29

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 29
29 Svo segir Landn. (s. st.), að þeir Teitur og Helgi »fundust í Merkurhrauni upp frá Mörk við Helgahvál«. Sagl er, að Merkur- hraun hafi nafn af bæ, er þar hafi verið og heitið Mörk. Gera raunnmælin mikið úr landkostum þar. En sá er gallinn á, að eng- inn veit hvar þessi bær hefir verið. Liklega er það þó ekki tómur hugarburður, að bærinn haíi verið til. Að vísu má segja, að nafnið Merkurhraun komi af því, að hraunið hafi verið skógi vaxið. Og það hefir nú án efa verið. En orð Landn. »upp frá Mörk« sýna, að M'órk hefir heitið sérstakur staður á hrauninu. Og þau miða, meira að segja, við hann sem alkunnan. Liggur þar næst að ætla, að það hafi einmitt verið bær. Um það, hvar sá bær hafi verið, getur leikið á tvennu. Niður með Merkurlaut, góðum kipp fyrir neðan Axarhól, hafa lengi verið beitarhús frá Hjálmholti og eru þar rústir miklar og sumar fornlegar. Þar halda margir að Mörk hafi verið, og þá hefði legið beint við að kenna Merkurlaut við þann bæ. En ofarlega í hrauninu norðan til eru grænir hólar og mýrardælur og þar eru all miklar rústir. Þar heitir Olafsvallasel og sýnir nafnið að þar hefir verið sel á sínum tíma. En bær gat vel verið þar áður. Og Helgahóll, sem víst er talið að sé Helga- hváll, er þar skamt norðar, svo að orð Landn. »upp frá Mörk við Helgahvál«, sýnast að benda á Olafsvallaselið sem þann stað er bærinn Mörk hafi verið. — A Helgahvál er minst í Árb. 1894, bls. 15., og Jiefi eg engu þar við að bæta. Gnúpverjalireppur. Svo segir Landn. V. 11: »Þorbjörn laxakarl nam Þjórsárdal allan ok Gnúpverjahrepp allan ofan til Kálfár ok bjó hinn fyrsta vetr at Miðhúsum«. Hér við verður dálítið að athuga. Við hvað er hér miðað með orðunum: »Ok bjó hinn fyrstavetr«? Af hvaða vetruni var sá fyrstur? Auðvitað af þeim vetrum, sem Þorbjörn bjó í landnámi sínu. En þá vill svo til, að Miðhús, fyrsti bústaður- inn hans, er fyrir neðan Kálfá og því fyrir utan landnám hans, ef það náði ekki nema •ofan til Kálfár. En þá er alt er vel athugað, kemur það nokkurn veginn ljóst fram, að Þorbjörn hefir numið Gnúpverjahrepp allan, en orðunum: »ofan til Kálfár« er ofaukið í Landn., og hlýtur það að eiga rót sína í því, að heimildannaður söguritarans hefir verið ókunnugur og hugsað sér landslagið dálítið öðruvísi en það er. Þetta sést bezt þá er hann fer að skýra frá, hvernig Þorbjörn skifti landnámi sínu milli venzlamanna sinna. Hann kom fyrstur þeirra út, og hefir víst af ásettu ráði numið svo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.