Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Qupperneq 22

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Qupperneq 22
22 flytja hann, er hin yngri voru rituð, og hann þá heitið í Hróarsholti? Legg eg þessar tilgátur undir álit skynbærra manna. önundur bíldur. Svo segir Landnáma (V. 9.): »önundr bíldr, er fyr var getið, nam land for austan Hróarslæk ok bjó í önundarholti«. En áður, í 4. k. segir frá því, er önundur féll í Orustudal fyrir Gunnari Baugssyni. Landnám Önundar hefir að neðanverðu takmarkast af landnámi Lofts, eður þeim hluta þess, sem Loftur gaf Þórviði Ulfs- syni, og hafa landamerkin líklega verið um Súluholtskeldu. Að of- an hefir landnámið náð að löndum þeirra bræðra Arnar væla og Þorleifs gneista. Að vestan sýnist í fljótu bragði, að það hafl náð að Hróarslæk. En hafi svo verið, þá heflr Hróar bygt í landnámi önundar, og getur það vel verið. En hitt getur lika verið, að orð Landnámu: fyrir austan Hróarslæk, hafi þá eina meiningu, að land- nám önundar hafi verið til austurs frd Hróarslcék, eða jafnvel: fyrir austan Hróarslœkjarland. En þó að Hróar hafi þegið land sitt af Önundi, þarf ekki getgáta mín um »Hróarslæk« og »Hróarsholt« í handritunum að falla fyrir það. Að austan heflr land Kols í Kols- holti tekið við, hvort sem hann heflr nú verið landnámsmaður, eða leysingi önundar, sem er fult eins líklegt, bæði af því, að nafnið Kolur er oft þrælsnafn, og líka af því, að eftir landslagi virðist eðli- legast, að landnám Önundar hafi í fyrstunni náð austur að Villinga- holtsvatni og Skúfslæk, en Kolur svo fengið skák austan af því. En milli Kolsholts og önundarholts eru engin landaskil af náttúr- unni. Sú er sögn um Kol, að hann hafi átt vingott við Ragnheiði á Ragnheiðarstöðum, en hafi þótt leiðin þangað votsöm, og því lagt göngugarð ofan frá Kolsholtsbjalla til Ragnheiðarstaða (hinna fornu, auðvitað). Og hvað sem um þá sögu er að segja, þá sýnir garður- inn sig enn í dag, sér gjörla til hans alla þessa leið, þó hann sé mjög niðursokkinn og suðurendi hans sandi hulinn, en efri endinn sokkinn í blauta mýri framundan Kolsholtsbjalla. Og á stöku stað, þar sem blautast er, er hann lítið eitt slitinn. Hann er ýmist kall- aður Kolsgarður eða Kolsstlgur. Eftir því sem tilhagar, virðist hann hvorki vera ætlaður til að vera landamerkjagarður né vörzlugarður. Mun það því rétt, að hann hafi verið göngugarður. Ekkert getur Landnáma um það, hvar önundur bíldur var heygður. En leiði iians er sýnt, á móaholti milli bæjarins og Orustu- dals. Eg skoðaði það í sumar, og Guðbrandur bóndi Tómasson í Önundai'holti með mér. Sigurður Vigfússon heíir lýst þessu mann-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.