Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Síða 40

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Síða 40
40 það hafa verið nokkuð almont, þó sögurnar getí þess ekkí. ()g það er eðlilegt, því á slíkum smáþingum, þar sem einn réð öllu, hefir vanalega ekkert gerst, er í frásögur væri færandi. Vér hefðurn naumast hugmynd um þau, ef örnefni og fornleifar væri ekki til minningar um ýmsa af slíkum þingstöðum. Ekkert örnefni bendir samt á þingstað Ketilbjarnar, og enginn gat vísað mér á fornleifar, er benti á hann. En i sumar kom eg að bæ þeim í Grímsnesi er Kringla heitir; hann er nokkuð suðvestur frá Mosfelli. Tók eg strax eftir því, að eigi gat Kringlu-naímh verið dregið af landslagi. Kom mér þá í hug, hvort það kynni ekki að verið dregið af kringlóttu fornvirki nokkru, er þar hefði verið áður en bærinn var gjör. Og ef svo væri, kynni það að gefa bendingu um þingstað Ketilbjarnar; »Kringlan« kynni að vera einn af þessum fornu hringum, sem á ýmsum stöðum eru kallaðir »lögréttur«. Eg spurði því eftir, hvort þar væri ekki neitt fornt, hringmyndað mannvirki. Mér var sagt að það væri þar, og sýnt það. Hringurinn er þar norður i túninu, þykkur og fornlegur, 4 faðmar á þvermál og dyr mót austri. Nú kom mér í hug, að raunar kynni þetta að vera forn fjárborg eða hestarétt, og vildi eg vita, hvort þar fyndist nokkur gólfskán, er af taði væri mynduð eða bæri vott um taðleifar. Lét eg því á 2 stöð- um grafa niður úr gróðrarmoldinni ofan í óhreyfða mold, og var það rúm 2 fet á dýpt. I báðum stöðunum varð fyrir þunt lag af nokkurs konar gólfskán, sem aðskildi gróðrarmoldina frá óhreyfðri mold. En ekki leit út fyrir, að þessi gólfskán væri mynduð af tað- leifum. Hún var rauðleit á lit og leit lielzt út fyrir að vera mynd- uð af harðtroðnu mýrartorfl. Það þótti mér fremur benda á manna- gólf en skepna, án þess eg þó fullyrði neitt um það. Fornar tóftir, er liktust búðatóftum, sá eg þar ekki nema aðeins eina, skamt norð- ur frá hringnum. En það er ekki að marka; margar tóftir geta falist undir »fornu fjósunum«. undir bænum, og undir svo mörgum húsum, sem þar eru til og frá um túuið. — Þar er nfl. tvibýli. — Um þetta verður ekkert sagt. Og játa skal eg, að þetta framan- sagða er mjög veik bending um þingstað á þessum stað. Þó þykir rnér sem hún sé nokkur. Annar staður, sem benda mætti á, er Neðra-Apavatn. Man eg eftir, er eg kom þar á yngri árum minurn, að eg sá þar margar fornlegar tóftir til og frá um túnið. Þá gaf eg of lítinn gaum að slíku. Nú er búið að slétta þær út. Þó er þar enn, austur á túnhalanum, aflöng tvískiít tóft, sem kölluð er Vopna- hús. Svo sagði mér Vigfús sál. Daníelsson, er þar bjó lengi. Skamt þaðan, norðan við túnjaðarinn, er kringlótt lág, sem heitir Orustulág. Um tildiög þessara örnefna er alt ólcunnugt. Stafl þau bæði trá

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.