Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Side 41

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Side 41
41 hinu sama atviki, getur það ekki verið Apavatnsför Sturlu Sighvats* sonai', því þar varð engin orusta að því sinni. Og um þingstað verður ekkert af þessum örnefnuin ráðið. Blótbjörk. Björk heitir bær einn í Grímsnesi, hann stendur upp undir Lyngdalsheiði milli Klausturhóla og Svínavatns. 1 landi Bjarkar, svo sem stekkjarveg niður frá bænum, er liið einkennilega örnefni Blótbjörli. Það er vatnsstæði, sem vatn stendur í á vetrum og í rigningatíð, en er þurt í þurkasumrum og þá ekki annað en djúpt moldarfiag. Það er næstum kringlótt og svo sem 16—20 faðmar í þvermál. Ut af nafninu hefir sú sögn myndast, að bærinn Björk hafi fyrrum staðið þar, en hafi sokkið, af því tvær kerlingar hafi heitast þar og blótsyrði þeirra haft þau áhrif. Þarf ekki að fjöl- yrða um slíka sögn. Enda má sjá, að bær hefir aldrei staðið þar, því þangað er vatnshálli frá öllum hliðum. Og bærinn Björk hefir víst verið bygður í fornöld, þar sem hann enn er; það sýnir afar- digur og fornlegur túngarður, sem þar sést enn í túninu, og hefir bærinn vexið einn hluti garðsins. Má viða sjá slíkt á fornbýlum. örnefnið »Blótbjöi’k« er samt mjög merkilegt; það er án- efa frá heiðni, og bendir til þess, að þar nærri hafi staðið björk eiu (birki- tré), er verið hafi svo miklu meiri og fegri en skógurinn i kring, að heiðnir menn liafi haft áti'únað á henni, o: biótað liana. Þá er ki’istni var komin, liefir björkin auðvitað veiið upprætt, og nafnið síðan vei’ið fært yfir á þetta ljóta vatnsstæði, sein að líkindum hef- ir alt af verið þar. Og ef til vill hefir björkin verið brend í fiag- inu. Fi’am hjá Blótbjörk að austanverðu liggur forn garður, langur mjög. Hann beygist fyrir suðurhorn vatnsstæðisins, og af því sést, að það hefir verið þar áður en garðurinn var lagður. Annai’s er hann hér urn bil beinn frá landnorðri til útsuðurs, og er auðséð, að hann er ekki túngarðui’, heldur yörzlugaiður fyrir engjai’, sem Björk á fyi’ir vestan Blótbjöi’k í mýri þeirri er Farmýri heitir. Sér þar fyrir fornum fióðveitugarði þvert yfir mýriua við upptök lækjar þess, er úr henni rennur og Farlækur heitir. Vörzlugarðui’inn end- ar vestur við lækinn, því þaðan af er liann til varnar. Bæjarnafn- ið Björlc virðist benda á, að þar hafi skógurinn verið meiri en ann- ai’sstaðar. Þó er það næsturn tvísýnt, því óefað liefir þá víða í Grimsnesi verið góður skógui'. Getur líka verið, að bæriim liafi ver- ið kendur við hina helgu björk, blótbjörkina, þó hún væri spöl frá bænum. 6

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.