Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 1
■+■ Pálmi Pálsson. Hann varð bráðkvaddur 21. júlí þ. á.; var þá nýkominn til Kaup- mannahafnar, þar sem hann hafði ætlað að leita sér lækninga. En Pálmi rækti störf sín svo í smáu og stóru daglega, að ekkert beið ógert morguns af því, er honum bar að leysa af hendi, og dauðinn mun ekki hafa komið að honum óviðbúnum. Frábær reglusemi, í hinum ýmsu greinum hennar, var höfuðeinkenni hans, og gætti henn- ar bæði útávið og innávið. Þessi reglusemi, sem bygðist á þekk- ingu og lærdómi, og stjórnaðist af grandgæfilegri athugun og viti, var framkvæmd með iðni og atorku, smekk og stjórnsemi. Því á Þjóðminjasafnið honum svo mikið að þakka og þetta fó- lag, sem hann stjórnaði 3 síðustu árin og var ritari fyrir þar áður frá því 1903. Safninu veitti hann forstöðu 1893—96. Um aðalstarf hans við það var rætt í minningarriti safnsins í þessu tímariti, sjá Árb. 1912, bls. 28—33. Meðan safnið er til mun það bera hans minjar og halda á lofti minningu hans, þótt það nyti hans skamma stund. Pálmi varð skólamaður, svo sem og nám hans og hæfileikar stóðu til. Námsferillinn og æfiferillinn var krókalaus: Pálmi fæddist að Tjörnum í Eyjafirði 21. nóv. 1857, sonur merkishjónanna Páls bónda Steinssonar og Maríu Jónsdóttur. Heim- ilið var fyrirmynd, bæði að framkvæmdum og reglusemi, Páli við brugðið fyrir dugnað í búskap og þeim hjónum báðum fyrir gest- risni. — Á 23. aldurs ári varð Pálmi stúdent og 5 árum síðar meistari í norrænum fræðum. Síðan 10 ár tímakennari við latínuskólann í þeim greinum, er hann hafði stundað, en þá jafnframt um nokkur ár forstöðumaður Forngripasafnsins (Þjóðminjasafnsins) og aðstoðar- bókavörður við Landsbókasafnið. Loks var hann aldarfjórðung fast- ur kennari við skólann, 7 síðustu árin yfirkennari. Skólinn naut 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.