Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Side 8

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Side 8
Hvað Snorri goði sagði. Tvær athugasemðir við 145. kap. í Njáls sögu. Snorri goði léði stundum vængi orðum sínum, vængi, sem halda þeim lengi á lofti. Og stundum voru þau skerandi skörp eða þrungin hárbeittu háði. Orð hans á kristnitökuþinginu um hraunið og reiði goðanna hafa nú flogið um landið og jafnvel út yfir hafið um niu alda skeið, og virðast ekki að þvi komin enn að detta dauð niður. Orð hans á brennumálaþinginu 11 árum síðar, hafa le'ngi verið í minnum höfð, og loks færð í letur af höfundi Njáls sögu, þar sem þau hafa varðveizt. En þau hafa þá sýnilega verið orðin aflöguð í meðferð- inni, og þó einkum vísan hálfkveðna, sem Snorri kvað fyrir munni sér brosandi og menn hlógu »allmjök« að. 1. »Hin mestu illmenni í liði Flosa«. Þegar þeir Ásgrímr Eiliðagrímsson gengu í liðsbónina í brennu- málunum, komu þeir til búðar Snorra goða. Hann gerði ráð fyrir að svo kynni að fara, að í bardaga slæi á þinginu og sagði þeim, hversu hann myndi þá við því snúast og hvernig þeir skyldu að fara. Ef þeir brennumenn hrykkju fyrir þeim, kvaðst hann ætla að þeir myndu reyna »at renna til vígis í Almannagjá, en ef þeir komast þangað, þá fáið þér þá aldri sótta. Mun ek þat á hendr takast at fylkja þar fyrir liði mínu ok verja þeim vígit« (139. k.) — Vígi það í gjánni, sem átt er við, hefir eflaust verið í gjánni efri, þar sem Kárastaðastígur var á síðustu öldum og nú er akveg- urinn ofan. Svo fór sem Suorri sagði. Sér harxn hvað verða muni, er hann spyr »hvar komit er málunum; tekr hann þá at fylkja liði sínu fyrir neðan Almannagjá, millum ok Hlaðbúðar«. — Bardaginn hófst við fimtardóminn, sem sat í lögréttu fyrir aust- an ána. — »Nú brestr flótti í liði Flosa, ok flýja þeir allir vestr um öxará, en þeir Ásgrímr ok Gissurr hvíti gengu eptir ok allr herrinn. Þeir Flosi hörfuðu neðan milli Virkisbúðar og Hlaðbúðar.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.