Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Síða 27
27
Listasafnið var stofnað af cand. jur. Birni Bjarnarsyni, siðar
sýslumanni í Dalasýslu, 18851). Safnaði hann saman í Kaupmanna-
höfn um 40 málverkum árunum 1885-—87 og voru þau jafnóðum
send til landshöfðingja, sem kom þeim fyrir til geymslu í alþingis-
húsinu. Við þinglok 1887 létu forsetar alþingis umsjónarmann al-
þingishússins gera skrá yíir málverkasafnið og sendu landshöfðingja
afrit af henni. Arið 1895 voru landshöfðingja send málverk þau,
er Edvald læknir Johnsen hafði ánafnað Listasafninu eftir sinn dag.
A fyrnefndri skrá 2 afskriftum höfundarins af henni, og afskrift af
virðingargjörð u.» hin síðarnefndu málverk, byggist eftirfylgjandi
skrá. gerð við árslok 1915, og var safninu þá skift í 3 flokka.
A. Málverkasafnið.
1. Geitá og héraðið í kring. Merki: T. Kloss 1871. Málari:
Frederik Theodor Kloss prófessor (1802—76). L. 143 sm.
Umgjörð gylt, br. 13 sm.
2. Veiðimenn í Týról. M.: C. Schleisner 1874. Málari: Christian
Andreas Schleisner prófessor (1810—82). St. 45X36,5 sm.
Umgjörð gylt, br. 6,5 sm. — 1 og 2 eru gefln af Kristjáni
konungi 9.
3. Hermenn i dómkirkjunni í Siena. M.: Gotthard Werner,
Palermo 74 (þ. e. 1874). St. 51,5X39,5 sm Umgjörð gylt,
br. 12 sm.
4. Heimasæta (»Interieur«). M.: Johan Boklund, Múnchen
1850. Málari: Johan Christoffer Boklund (sænskur, 1817—80).
St. 47X37,5 sm. Umgjörð gylt, br. 10 sm. —
3 og 4 eru gefin af þáverandi kronprinsessu, nú ekkju-
drotningu, Lovísu.
5. í skógi (milli Hleiðrar og Hróarskeldu). M.: C. F. Aagaard
1880. Málari: Carl Frederik Aagaard prófessor (1833—95).
St. 118X188 sm. Umgjörð gylt, br. 19 cm.
6. Valkyrja. M.: P. N. Arbo. Málari: Peter Nikolaj Arbo
(norskur, 1831—92). St. 39X31,5 sm. Umgjörð gylt, br.
10 sm.
7. Konumynd. M.: [C. Balsgaard 1848, en málað yfir það og
sett annað m]: C. Balskaard 1840. (Mun 1846 þó réttara).
Málari: Carl Vilhelm Balsgaard prófessor (1812—93). St. 80
‘) Pyrsta bréf hans til landshöfðingja viðvikjandi safninu, hefir verið dagsett
18. jnní 1885, en það finBt nú ekki í skjalúsafni landshöfðingja.