Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Blaðsíða 11
11
til 2Vs m.; eru að útsunnanverðu fremst smáútvíkkanir 2, og svo
sem nokkur brik í milli. — Á gólfinu er nú blautt sauðatað; sígur raki
niður um niðurfallið innst, en þvergarðurinn í miðju og sá sem er
fremst hindra allt útrennsli; vegna opsins fremst myndast súld mikil
í hellinum. Skánarlagið í hellinum er um 30—35 cm. að þykkt,
en hæðin frá því til lofts er þó 1,65 m. Hæðin hefur líklega verið
jöfn alls staðar, ca. 2 m. — Við norðurvegginn virðast hafa verið
garða-hellur, og líklega hafa þær verið beggja vegna, og hellir-
inn fyrrum verið hafður fyrir fé. — Áletranir eða merki sjást ekki,
nema mjög nýlegir upphafsstafir og nafn fremst. — Niðurhrunda mold-
in innst hefur komið niður um strompinn, sem þar er nú og sér enn
votta fyrir að innan, og líklega að utan einnig, þar sem er djúpur
bolli. — Innvið moldarbynginn hefur verið hlaðið á gólfið, lágur þver-
garður. — Hvelfingin mun hvergi brotin. — Síðar: Um strompinn
víkkar hellirinn, er stallur á norðurvegg og verður flöt hvelfingin.
Skríða má inn fyrir moldamiðurhrunið og er hellirinn alls 26,50 m.
að lengd. — Breidd í innri hlutanum er 3,70 m. Mikið moldarlag er
á gólfi, hæðin 1,30 m. frá því upp, en það 1,27 m. að þykkt, hæð
því hér 2,57 m. — Innúr suðvestur horninu er ranghali, lengd 13 '/2 m.,
breidd 1,15 m. á moldarlaginu í honum; það er jafnt alls staðar, ca.
60 cm., en hæð alls 1,50 m. — Fjárhellirinn, sem nú er, er líkur hinum;
opinn að framan, en hlaðið hefur verið fyrir opið mjög, svo að nú
eru að eins dyr við suðurvegginn, ca. 80 cm. að breidd neðst en
mjórri efst (sbr. 4); skáþekja með gluggaopi litlu á, er gerð af kamp-
inum og upp að bergbrúninni; er þetta nýlegt verk að sjá. — Nokkuð
virðist hvelfingin skemmd af niðurhruni og er ekki vel vatnsheld;
bergið er fullt af hnullungum og stórgerðri möl. Þó er lögunin næst-
um óbreytt. Hellirinn er beinn og gengur beint í bakkann. Hann er
að lengd 14 m. Breidd um miðju og framan til 3,20 m., en smá-
mjókkar inneftir og er 23/4 innst. Fremsti hlutinn, 7 m., hefur verið
hærri undir loft, 2'U m., innri hlutinn 2,20 m.1).
Hér við hliðina að sunnanverðu er annar hellir. Hann er nú
luktur að framan, opið fyllt af mold uppundir hvelfingu oí; verður
þar ekki inn smogið. Svo sem á Þórunúpshellinum er hér milligang-
ur milli hellanna, 2 m. frá innganginum; hann hefur verið bogmynd-
aður eða hvelfdur yfir sem venjulega, 1,40 m. að breidd neðst og
nú ca. 1,10 m. að hæð, en mjög er þar nú þykkt lag á gólfi. — Nú
er hlaðið torfi upp í hann. Er það er tekið burt, sér að hvelfing hans
er lægri innst, þ. e. næst hinum lukta helli. Lukti hellirinn er svo
1) Sjá um þennan helli í Árb. 1905, bls. 55.