Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Blaðsíða 25
25
fyrir haust eitt að gera fjárhús. Hann er laglega gerður, inn í hól;
forskáli nær enginn og smáhalli í innganginum, sem er rúmur 1 m.
og svo 1 þrep niður. Gólf flatt. Veggir beinir og úthöggnir jötugarð-
ar við gólfið: sjá 29. Manngengur vel. Lengd 9,25 m., auk forskála,
breidd 3,20 m. Innst er hellirinn bogadreginn og svo sem nokkru
víðari hvelfing: sjá 30. Sbr. sóknal. 9, I—K.
Lýtingsstaða-hellar. Á Lýtingsstöðum eru 2 hellar. Annar er
notaður fyrir fé framan-til, en innar er hann notaður fyrir hey og
er sá hlutinn hærri, en lík vídd er sögð vera um hellinn allan við
gólfið og varla minni 4,50 m., og hann er meira en manngengur
eftir miðju. — Lengd er að minnsta kosti 16 m., því að 60 kindur
eru sagðar komast á garða í þeim hlutanum, sem fé er í. — Hinn
er hafður fyrir fé, olbogamyndaður, fremur mjór, en mun mann-
gengur allur. Tekur ca. 40—50 kindur. Sbr. sóknal. 9, C—D.
Þjóðólfshaga-hellar. í Þjóðólfshaga eru 5 hellar.
Nr. 1 er í útsuður frá bænum, í svo-nefndu Stekkjartúni, og eru þar
nú fjárhús 2 og heyhlaða hjá hellinum. Hlaðan er við hellinn að austan-
verðu; er veggur hlaðinn í milli og er gangur gegnum hann.
Hellirinn er 6,25 m. frá veggnum og þvert yfir, en frá tröppum og
þvert inn 4,65 m. Er nú hlaðinn forskáli með 4 þrepum efst, skáa
(= 2 þrep) og 2 þrepum neðst. Forskálinn er mjög víður neðst og
innst, því að hellisopið er mjög vítt og er þar þó hlaðinn veggur
undir bergið að suðvestan-verðu.
Hellirinn er óreglulega kringlóttur. Jata er við bergvegginn í
útskotum, stallur og hellur við; svo umhverfis. Strompur er skammt
fyrir innan þrepin, vídd 55—75 cm. neðst. Bergþykktin ca. 75 cm.,
þar á torfhleðsla, ca. 1 m. á ská og illa gerð. — Annar strompur er
ca. 2 m. norð-austar, álíka víður, en byrgður. — Hæðin er mest
norðan-til ca. 2 m., en loftinu hallar öllu og er að eins 1 m. til lofts
við jötuna að suð-vestanverðu. Tekur um 50 fjár.
Nr. 2 er heima á túninu, rétt fyrir vestan bæinn. Hann er hafð-
ur fyrir kindur, tekur um 50 lömb. Við hann er hlaðinn víður og
hár forskáli, með sperrum og helluþaki á langböndum. 7 þrep er
niður að ganga. Trégarði með grjóti undir á miðju gólii. Hellirinn er
að lengd frá neðsta þrepi 93l* m., breidd að framan 4,15 m. og innst
3,80 m. Hvelfing all-lagleg, en nokkur útskot neðst, og voru fyrrum
garðar við báða veggi. Hæðin öllu meiri innst en fremst; innst er
hún 2,50, en fremst 1,90 og er þar moldargólf, sem ekki má grafa
niður sökum vatnsuppgangs. — Strompar 2 allvíðir og báðir nýlega