Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Blaðsíða 58
58
G. E. síðast i línu, en allur íremri hluti línunnar er af máður«. segir
hann, og virðist það vera svo að skilja, að þessir tveir stafir séu í
í hellinum með þeirri gerð, sem er á þeim í ogham-stafrofi, því að
hann bætir við: »Þessa ogham-stafi hafa engir getað ritað í bergið,
nema hinir írsku einsetumenn, sem hér dvöldu löngu áður en land-
námsmennirnir nórsku slógu eign sinni á ísland«. í síðari kafla grein-
ar sinnar skýrir Einar Benediktsson dálítið frá helli í Hell(n)atúni,
öðrum hjá bænum Árbæjarhelli, og frá hellinum á Geldingalæk, og
enn fremur frá áletrunum í helli á Hellum á landi. í hinum fyrsta
kvaðst hann »þykjast hafa fundið rómverskt letur frá 4. öld eftir
Krist«; er það og svo, að þetta getur varla heitið ennað en að þykj-
ast hafa fundið það, eftir því sem hann segir frá: »Á einum stað
stendur skýrt höggvið S. I. G.1). IV, sem getur verið skammstafað:
Seculo Jesu Generationis Quarto«. — Þetta eru nú raunar upphafs-
stafir frá 17.—18. öld. — Á Hellum segir hann vera afar fornt letur,
er hann hyggur »hljóti að vera leifar af ogham-stöfum, mjög máð-
ar«. — Ábyggilegri líkur en þetta fyrir hinum mikla aldri þessara
hella færir hann ekki fram. í niðurlagi greinarinnar kveðst hann þó
»meta mjög mikils hinn sýnilega vitnisburð munkahellanna á Suður-
landi«, — sem vitnisburð um það, að ísland sé hin forngríska Thule.
— »Uppruni orðsins og aldur einsetuhellanna eru mikilvæg atrrði til
sönnunar því, að hið eldra nafn íslands var Thule«, segir hann.
Ástæða Brynjúlfs Jónssonar fyrir eða tilefnið til »Papa-hugmynd-
ar hans virðist koma fram í þessum orðum hans í fyrstu: »Það hef-
ur hlotið að vera erfitt og seinlegt verk, að úthöggva svo hart berg.
Það er næstum ótrúlegt, að menn hafi lagt það erfiði á sig, nema
nauðsyn bæri til. En þá nauðsyn get ég ekki hugsað mér þar, sem
nóg var byggingarefni og nægur rekaviður til húsagerðar, eins og
var undir Eyjafjöllum bæði á landnámstíð og eftir það. Auk þess
eru hellarnir svo myndarlega og mér liggur við að segja snildarlega
gjörðir, að það lýsir talsverðri kunnáttu. Þeir sem hjuggu þá út,
virðast hafa verið allvel æfðir í því verki. Mér liggur við að efast
um, að hellarnir séu frá íslands byggðar tíma. Mundi ekki hugsan-
legt að þeir gætu verið eldri? Mér hefur dottið í hug, að þeir kunni,
ef til vill, að vera eftir papa«.
Það er rétt, að það hefur verið erfitt og seinlegt verk að gera
suma hellana; en suma hefur verið fremur hægt að gera, þar sem
smáhellir eða skúti var fyrir og bergið fremur auðunnið. Þar kunna
1) Hér er S, en ekki Q; ,'skammstöfunin S. I. S. merkir sennilega Sigurður
Jónsson.