Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Side 74
74
hitann. Einn hellirinn er á Berustöðum, tvídyraður, skiptur í þrjú
rúm með torfhleðslu, víða hvar 4 ál. á hæð, tekur víst 200 fjár. í
honum er móberg, orðið grátt af elli, en glittir í það víða, þegar í
það er skafið. Hellir þessi er merkilegur að því, að í honum víða
hvar sjást yngri og eldri (já, mikið gamlar) ristur og rósir. Sumt af
því eru líkl. rúnir, en sumt kann ske ómerkilegar rispur, fyrir utan ár-
töl og fanganöfn ýmsra manna frá næst-liðinni öld1). — Annar hell-
irinn er þar aflagður vegna vatnsuppgangs og eru svo signar sam-
an á honum dyrnar. Þriðji hefur líklega verið þar, allur niður fallinn,
sem sagt er að hafi verið fjós fornmanna, má ske fyrir 20 naut og
hver bás höggvinn í bergið út af fyrir sig. — Einn hellir er í Seli,
tekur 100 fjár, víða mikið lágur. í Ási eru 4 heima-við og einn uppí
högunum; einn af þeim er heyhellir, tekur víst af 200 hestum, mikið
hár á sumum stöðum; í honum skal vera letur; annar er brúkaður
fyrir lömb og tekur 60 við jötur; annar í stekkjatúninu er bæði fjár-
og hey-hellir; tekur undir 100 fjár og af 60 hestum hey, en hinn er
brúkaður fyrir hesthús, tekur 18 hesta við stall; sá 511 tekur einninn
100 fjár2). — í Hellatúni eru víst 4; einn er innanbæjar, brúkaður
fyrir búr; á þeim merkilegasta eru dyrnar saman fallnar; hann er 12
faðmar á lengd; í laginu innan eins og skip á hvolfi; þar er sagt að
hafi verið nógar rúnir á ristar. í flestum þessum hellrum mun vera
móberg, nema í heyhellrinum í Ási.
11. Úr lýsingu Villingaholts- og Hróarsholts-sókna
eftir séra Tómas Guðmundsson, 1841.
Hellirar eru og engir merkilegir, svo menn viti, utan ef telja
skal Dimmhellir í Kolsholtslandi, í hvers frammunna (þó á engum
rökum), að kálfur skyldi hafa átt að fara, en komið út hárlaus í Hest-
fjalli fyrir ofan Hvítá.
12. Úr lýsingu Gaulverjabæjar-sóknar eftir séra Jakob
Árnason, 1840.
Sumstaðar í þeim áminnstu heiðum eru hólar og er undirlag
þeirra mjúkur sandsteinn í hvern klappaðir hafa verið, og klappast
enn hér og þar, sem tækifæri gefst, hellrar, bæði til að láta fé liggja
í, og líka brúkast þeir heima við bæina fyrir heyhlöður, og verkast
hey vel í þeim; nokkrir eru úthöggnir til lambhúsa og lagaðir fyrir
jötur að innanverðu.
1) Þessar myndir sýndust mér vera þar meðal annars: T A t T T
2) Þessi 5*> hellir í Ási er í svo-kölluðum Skollhólum, norður-landnorður frá
Ási; þar er mér nú sagt, að vist muni rúnaletur vera.