Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Side 79
79
keyptu þá brott, því at þeim þótti sér þrönglent. Þeir Hróðgeirr brœðr
námu síðan lönd i Flóa, Hraungerðingahrepp, ok bjó Hróðgeirr í
Hraungerði en Oddgeirr í Oddgeirshólum. Hann átti dóttur Ketils gufu.
Hafnar-Ormr er þar heygðr í höfðanum framm frá bœnum í Höfn,
sem hann tók land«.
Loks segir í 329. kap. Landnámabókar: »Hróðgeirr enn spaki ok
Oddgeirr bróðir hans váru Vestmenn1), er þeir Fiðr enn auðgi ok
Hafnar-Ormr keyptu brutt ór landnámi sínu. Þeir námu Hraungerðinga-
hrepp, ok bjö Oddgeirr í Oddgeirshólum. Hans sun var Þórsteinn
oxnabroddr, faðir Hróðgeirs, föður Ögurs í Kambakistu, en dóttir
Hróðgeirs ens spaka var Gunnvör, er átta Kolgrímr enn gamli. Það-
an eru Kvistlingar komnir«.
Landnámabók kann að virðast mótsögul um merki landnáma þeirra
Kolgríms hins gamla á Ferstiklu og Finns hins auðga undir Miðfellir
eptir því sem þar segir, að Hróðgeir hinn spaki2) byggi i landnámi
Finns. Skal nú hugað eptir merkjum landnáma þeirra nokkuru gjörr,
1. Eitt handrit Landnámabókar, Sturlubók, segir landnám Kol-
gríms hins gamla annað en hér var sagt. Svo er mælt í 21. kap. þeirr-
ar bókar: »Kolgrímr enn gamli, son Hrólfs hersis, nam land út frá
Botnsá til Kalmansár ok bjó á Ferstiklu«. Hér skal eigi skyggnzt
eptir austurtakmörkum landnáms hans, en það hygg eg, að hann
næmi eigi land frá Botnsá, heldur að eins frá Bláskeggsá, svo sem
segir í Hauksbók, þó að eigi verði örugg rök til tínd3). En hitt fær
alls eigi staðizt, að hann næmi til Kalmansár, því að hvar áttu þeir
að hafa mætzt þá, hann og Finnur hinn auðgi undir Miðfelli, er land
nam einmitt frá Kalmansá til Laxár? Þeir hefði þá sótzt um sama land.
1) Skáletruðu orðin eru úr Melabók, annars ávallt úr Sturlubók.
2) Einar Arnórsson prófessor juris telur hann landnámsmann (Skírnir 1930,
bls. 23, 8. línu a. n.). En hann getur eigi heimilda. Einkennilegt virðist um
byggð þessara Vestmanna, sbr. Ávang i Botni. Væri rannsöknarefni, hvort
Landnáma gengur eigi á hlut þeirra um landnámsmennsku.
3) Sturlubók segir um landnámið á móti (sunnan við): »Þórsteinn, son Söl-
mundar, Þórólfssonar smjörs, nam land milli Botzár ok Forsár, Brynjudal
alian. Hann átti Þórbjörgu kötlu, dóttur Helga skarfs. Þeira sun vas Refr enn
gamli, er Bryndœlir eru frá komnir«. Aptur á móti segir Hauksbók hér um:
»ÞóróIfr smjör, er fyrr var getit, var sun Þórsteins skrofa, Grímssonar þess,
er blótinn var dauðr fyri þokkasæld ok kallaðr kamban. Sun Þórólfs smjörs
var Sölmundr, faðir Þórsteins, þess er land nam í Brynjudal á millim
Bláskeggsár ok Forsár. Hann átti Þórbjörgu kötlu, dóttur Helga skarfs
Geirleifssonar, er nam Barðaströnd. Þeira sun var Refr í Brynjudal, faðir Hall-
dóru, er átti Sigfúss Elliða-Grimsson. Þeira dóttir Þórgerðr, móðir Sigfúss, föð-
ur Sæmundar prests ens fróða«. Frásögn Hauksbókar saman borin við Sturlu-