Öldin - 01.07.1893, Page 18

Öldin - 01.07.1893, Page 18
66 ÖLDIN. fyr ? Faðir þinn hefir unnið stórhag fyrir föður minn og ríkið. Er hann enn á lífi ?‘‘ „Hann er á lífi og er yðar hátign þakk- látr fyrir mildi yðar.“ „Mun það vera ?“ Þessi orð hrutu konungi líka eins og ósjálfrátt fremr en spurning. Inn ungi maðr fann blóðið hlaupa upp í kinnar sér, og konungr tók eftir því. “Faðir þinn og ég vorum einu sinni sundrþykkir, ” mælti hann og brosti, og leið eins og lítið ský fyrir augabrýr hans. „En alt er það nú fyrir löngu gleymt,“ bætti hann við, „og ég fagna því, að jafn mikils háttar maðr skuli eiga jaf'n vaskan son. Þú varst einn inna sjötíu Finna við Demm- in ?“ ,,Já, herra konungr.“ ,,Og þú hefir ekki enn verið nefndrtil frama ?“ „Ofurstinn minn hefir lofað því að minnast mín.“ „Konungr þinn gleymir aldrei góðri fylgd. Gústaf Bertila, ég var einmitt nýbúinn að undirskrifa skipunar- bréf þitt sem fánasveinn (fendrik). Tak við Því, og þjóna oss síðan með sóma!“ ,,Yðar hátign“—stamaði Bertila. „Ég hefi enn þá orð að segja þér. Að- ferð þín í gær var í móti lögskipaninni.“ ,,Já, herra.“ „Ég vil að dátar mínir hlýði mér ná- kvæmlega. Nú hafa menn sagt mér að þú liafir farið af baki við bröttustu hæðina til þess að komast því fyr upp á hana.“ „Það er satt, yðar hátign.“ „Og svo hafir þú, meðan hestliðið reið krókinn, lagt að velli tvo Austrríkismenn og tekið fyrstu f'allbyssuna“. Inn ungi maðr kom engu orði upp. Konungr komst við. „Koin nær ihér, ungimaðr,“ sagði hann ; „þúskalt nú vita, að einu sinni í æsku sýndi ég f'öðr þínum mikinn ójafnað. Skaparinn þekkir iðran mína og hefir nú gefið mér færi á að bæta það syninum, sem ég hefi brotið við föðr- inn. Fyrirliði (lautenant) Bertila, þú ert hraustr sveinn og göf'ugr og hefir numið hernaðarlist, enda færðir þú fjóra hestliða með þér í mína þjónustu. Sem yfirmaðr í liði mínu ertu nú orðinn jaf'nburða aðals- mönnunum. En til þess að enginn af fyr- irliðum mínum, hversu ættgöfugr sem hann kann að vera, skuli kalla þig bónda- soninn, óæðri sér, vil ég gefa þér naf'n, skjaldarmerki og riddarakross. Far nú, ungi maðr, far sonr minn,“ mælti konungr og viknaði kynlega, ,,og sýn þigmaklegan hylli konungs þíns.“ „Til dauðans,“ svaraði hinn og varð svo yfirkominn af' tilfinningum sínum, að hann föll á bæði kné fyrir konungi. Konungr stóð þá upp, og sú geðshrær- ing, sem snöggvast hafði brugðið fyrir á hans tígulegu og fríðu ásjónu, hvarf óðara fyrir konungs svipnum og hershöfðingja yfirbragðinu. Bertila sá að samræðan myndi vera á enda. Samt sem áðr beið hann áknjúnum og rétti konungi bréf, sem hann fram að þess- um morgni 'haf'ði borið saumað við kufí sinn. „Virðist að lesabréfþctta, herra. Þeg- ar ég lagði af stað í leiðangrinn og kvaddi foðr minn, fékk hann mér það og sagði: “Son minn, gakk nú, og leitast þú við að vinna hylli konungsins fyrir hugprýði og trúleik. Og berir þú gæfu til að ávinna hana fyrir þinn eigin verðleik og ekki sak- ir f'öðr þíns eingöngu, þá skaltu f'á honum bréf' þetta og seg honum að það sé erfða- skrá mín. Ið mikla konungshjarta mun skilja livað ég segi’.” Konungr tók við brétínu og braut það upp og las. Á svip hans sást, að hann komst allmikið við, þótt hann leyndi því. Inn fljótlegi dimmroði, sem of't á seinni ár- um lians var ið eina ytra mark um geð- breytingar þeirrar sálar, er svo kunni að stilla sig, steig nú eins og skýflóki upp á enni hans og gerði það purpurarautt, en hvarf af'tr þegar í næstu svipan. Þegar er hann haf'ði lesið alt bréfið, hvíldi hann augun um stund á svip ins fríða, glóhærða unglings, sem enn þá kraup við fætr hans,

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.