Öldin - 01.07.1893, Side 19

Öldin - 01.07.1893, Side 19
ÖLDIN. G7 „Statta upp,“ mælti hann loks. Bertila stóð upp. „Þekkir þú efni bréfs þessa ?“ „Nei, herra konungr." Konungr leit fast á hann, og var sem honum litist vel á inn hreina svip ung- mennisins, er har vott um sannleikann. „Ungi maðr, faðir þinn er manna ein- rænastr. Hann heíir hatast við aðalinn síðan á dögum Kylfustirjaldarinnar, en þá háði hann oftlega harða þraut í hroddi bændalíðsins, og einkum þá er Flemmings hestliðið hauð sér sjálft heim á búgarði hans. Hann fyrirbýðr þér að þiggja nokkru sinni aðalsnafnbót eða skjöld, og leggr við föðrbölvan sína, of þú hlýðir ekki.“ Bertila svaraði engu. Eldingu úr heiðu lofti hafði lostið yfir hans ungu ham- ingju, og allir hans metnaðardraumar um skjaldarmerkið og gullsporana voru svip- lega að engu orðnir, „Vilja föðursins verða menn að hlýða,“ mælti konungr. „Það aðalsnafn, sem ég hafði ætlað þér, máttu ekki bera. En vertu ókvíðinn, ungi maðr, þú heldr sverði þínu og fyrirliðafremd þinni; með þessu og hraustum armlegg, mun frægðarleiðin þér ávalt opin standa.“ Að því búnu benti konungr, og inn ungi maðr gekk leiðar sinnar, heldr en ekki ýmis-hugsi. III. JUNGFRÖIN ReGINA. Svalan dag, er degi hallaði í Októ- bermán. árið 1731, þremr. eða fjórum vikum eftir bardagann við Breitenfeld, sat uppi í turnherbergi einu í höllinni í Vurzborg hin fagra Regína af Em- meriz, systurdóttir byskupsins, ftsamt nokkrum þernum sínum, og var hún að sauma mynd Maríu meyjar á hvít- an silkifána, er hún vildi gefa setuliði kastalans sem sigrmerki, In unga mær ræddi með fullri einurð, því að dólgrinn í kastalahöllinni, inn fégjarni byskup, var nýlega burtu farinn, og kvaðst mundi fara í sýslu sína, en í raun réttri vildi hann flýja hersveitir Gústafs Adolfs, sem óðum núlguðust bæj- inn. Var hann hræddr um fjárhirzlur sinar og hafði falið inum hrausta hestliðs- foringja Keller, með 1500 manna, gæzlu staðarins og hallarinnar; Keller treysti inni öruggu afstöðu kastalans við ána Main, og hafði fullyrt við inn virðulega byskup, að fyr skyldi trúarvillukongr- inn brjóta hausskel s?na við þessa múr- veggi, en nokkr maðr af hans óguðlegu förunautum lcæmist inn fyrir þá. In fríða Regína var tæplega 16 ára gömul, hafði hrafnsvarta lokka, rjóða vanga eins og morgunroðinn, augu dimm- blá, djúp og leiftrandi, svo sem stjörnur tvær, er speglast um miðnætti í afskektu stöðuvatni. Hún var augasteinn ins aldr- aða byskups, og var liann eins ófús á að eftirskilja hana í kastalanum sem fjársjóðu sína, en Keller hafði staðhæft, að á slík- um óróatímum væri fastir múrveggir, al- skipaðir fallbyssum, öruggust vörn fyrir fagrar konur, enda var Keller sæmdar-' og trúleika riddari. Kaus hann heldr að verða til undir rústum kastalans, en gefast upp, meðan hann hefði slíkan dýrgrip að geyma. .Tungfrúin lauk sínum dimmbláu aug- um up}> frá saumunum og leit út um inn litla turnglugga og yflr fljótið, og kom auga á einstakan vagn, sem nokkrir ridd- arar fylgdu, og var á leiðinni yfir brúna milli bæjarins og hallarinnar. „Hver mundi þar vera á ferð,“ sagði hún, og rendi dreymandi augum, sem sjaldan mændu á aðra hluti, en á ið fagra líkneski Maríu úr marmarasteini í bænaherbergi hennar. „Æ !“ sagði Katrín, yngsta og málgefnasta þernan, ,,æ, þú heilaga jung- frú, er það samt ekki gaman að lifa á ó- friðarárum ? Á hverjum degi koma ný og ný andlit, státnir riddarar og röskvir

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.