Öldin - 01.07.1893, Qupperneq 30

Öldin - 01.07.1893, Qupperneq 30
78 ÖLDIN. manna, sem að sóttu. En í réttan tíma heyrðist kall þeirra Bertels og vopnagnýr- inn út í vígið. Sótti nú alt sænska liðið inn til kastalans. Keller og hans lið bjóst og þegar niðr til að verja innganginn. En Finnar voru nú komnir á kreik og sóttu fi’am; komust þeir og skjótt inn í hallar- garðinn. Þcir Keller vörðust eins ég óðir væru, og margr hraustr Svíi og Finni féll þar á hádegisstund sigrsins. Fall þeirra eggjaði og hvatti aðra fram. Menn tóku að kalla hátt: „Sömu grið og í Magde- borg!“ en það óp þýddi vægðarlausan dauða fyrir hvern og einn keisarans mann. Varð þar ið hroðalegasta mannfall. Margir munkar tróðust inn í þröngina sakir trúar- ofsans, sumir með blys en sumir með vopn í höndum. Flestir voru brytjaðir niðr, en aðrir köstuðu sér niðr sjálfir og létust dauð- ir vera. Tók nú óðum að birta yfir dráps- æði þessu og valköstum. Þá hljóþ fram Lénharðr Þorsteinsson (Lennart Torstenson) og þreif höndum inn óða Keller, gaf honum grið, og bjargaði honum undan æði liðsmannanna. Þeir, sem þá .oruálífi eftir af liði keisarans, köstuðu vopnunum og var þá kastalinn unninn. V. JÚDIT OG HOLÓFERNES. Þegar sólarinnar fyrstu árgeislar léku sér á öldum Main-fljótsins, var kastalinn Maríuborg á valdi Svía. Konungr reið þá inn í hallarforgarðinn, sem fullr var af dauðum mönnum; fundust þar í valnum yfir 20 rnunkar. Konungi sýndist sem sumir þeirra, sem þar lágu fallnir, væri heldr fjörlegir í kinnum, og liallaði liátt: „Standið upp! Ekkert iit skal yðr gert verða.“ Óðara spruttu þar á fætr margir, er menn hugðu steindauða, heilir og kátir, og vottuðu þakkir sínar inum göfuglynda, villukonungi. Kastalinn var unninn með áhiaupi, og varð því að leyfa liðsmönnunum að ræna hann. Fengu menn þar ið mesta ógrynni herfangs í silfri og gulli, vopnum og alls konar góðum gripum. Konungr hélt sjálfr vopnabúrinu, er í var alvæpni 7000 fót- gönguliðs og 4000 hestliða, 48 fallbyssur 4 skothylki, þau er mörsar heita; enn fremr hesthús kastalans með ið bezta gæð- ingaval, svo og kjallarann, fullan dýrind- is víni. Bókhlaðan var send að gjöf Upp- sala-háskóla. Dýrlinga-líkneskin hlaut rík- isfjárhirzlan. Þó að margir menn í staðn- um fengi aftr eignir þær, er þeir liöfðu flutt upp í kastalann, varð hlutskifti liðs- mannanna svo mikið, að þeir mældu silfrið í höttum sínum. Loksins var Keller neyddr til að segja til fjársjóða byskupsins ; fund- ust þeir undir hvelflngu einni niðri í her- bergi því, er lá undir kjallara kastalans. Fryxel, inn sænski sagnaritari, segir svo frá, að þegar liðsmennirnir voru að bera in þungu peningaskrín upp úr jarðhúsinu, hafl botninn dottið úr einu þeirra, og gull- dalirnir oltið um alt gólfið í forgarðinum. IIlupu þá dátarnir að og týndu þar hver upp það er hann náði, sendu konungi lítið eitt af yfirvarpi, en stungu mestu gullinu í sína vasa. Gústaf konungr tók eftir því og sagði brosandi: „Sleppum því, piltar ; úr því það er nú komið í ykkar hendr, þá eigið þið það.“ Svo var herfangið ríkulegt, að varla var nokkr sá liðsmaðr til í öllum sænska heruurn, að ekki fengi nýjan alklæðnað. í herbúðunum fékst heil kýr fyrir eina krónu, en sauðr fyrir fáeina aura; og svo segir Salvius inn lærði: „Finnarnir okkar hérna eru nú orðnir hagvanir suðr í vín- landinu góða, og hverfa víst eigi fyrst um sinn heim í Savolax aftr. I hernaðiuum á Líflandi urðu þeir að sætta sig við vatn og myglað brauð með öljukki, en nú hrærir okkar mörlandi sér kaldan graut í storm- húfu sinni úr víni og hveitibrauði.“ Meðal inna herteknu var greifinn af Lichenstein og jungfrú Kegiua. Skipaði konungr að þeiin báðum skyldi sýnd full virðiug og vorkunsemi; bauð hann jung-

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.