Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 2

Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 2
2 FYLKIR. mint alþýðu á það, að ísland er ekki, nú sem stendur, neitt ríki eða þjóðveldi, hvorki óháð né sjálfstætt, heldur aðeins einn hluti af, eða fylki í, ríki frændþjóðar okkar, Dana, og getur ekki um langa hríð orð- ið sjálfstætt ríki sökum fólksfæðar né fyrr en hér búa í það minsta ein millión manns og þjóð þess getur sjálf varið strendur þess og verndað kaupskip sín og óðul. Aðaltilgangurinn með þessu riti er hvorki sá, að stofna hér á landi neinn sérstakann flokk, né að leita sjálfum mér upphefðar og auðs, það yrði skammgóður vermir, heldur sá að gefa íslandi öflugt málgagn og gott frœðiblað með líku sniði og verkfrœða og vísindablóð eru er- lendis, og þar með leiða athygli manna enn betur að þeim fjársjóð- um og afl-lindum, sem ísland á næstum ónotaðar í skauti sínu, og benda alþýðu á bezta veginn til að nota þær, svo þær verði ekki útlendum gróðafálkum að bráð, en hún ætíð upp á erlendar afurðir komin, því eg er sannfærður um, að ísland, þó bert og næsta gróðurlítið sé nú, getur enn orðið heimili millióna, sem stunda hér ýmiskonar iðnað auk kvikfjárræktar og sjóveiða og reka verzlun við Noreg og Kanada; og eins veit eg vel, að íslenzk tunga, eitt hið fegursta og hreinasta mál heimsins, getur geymt og verndað kjarna heimsvísinda og mannfræða og trúar-atriða enn um langan aldur, og orðið sverð og skjöldur þeirra, sem það kunna til hlítar. Ennfremur hef eg þá trú, að íslendingar hafi enn nokkra sérstaka kosti að geyma og nokkur sérkenni, sem vert er að viðhalda; því við eigum kyn vort að rekja ekki aðeins til héraðshöfðingja og herfor- ingja í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, heldur til sveitahöfðingja í Vest- ureyjum og á írlandi, — og þess að auki til ýmsra listamanna frá suðurlöndum, og frá austurlöndum, og erum því náskyldir öllum ger- mönskum þjóðum, þar næst Keltum og Slóvenum, og eigum í æðum ögn af blóði Asíumanna (Mongóla) og Afríkumanna (Hamita). Ressi alsherjar skyldleiki ætti að gera oss auðveldara að kynna oss hið bezta í hugsun og lífi annara kynbálka og ávinna oss hylli þeirra, virðingu og tiltrú.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.