Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 3

Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 3
FYLKIR. 3 Pað er áform mitt að gera þetta rit svo vel úr garði sem mér er framast unt, með því að láta það flytja einarðar og gagnorðar ritgerðir um aívinnuvegi íslands uppfræðslu og stjórnmál, og þar að auki út- drátt og útleggingar úr merkum erlendum tímaritum og fræðibókuui um verkfrœði, heimsvísindi og trúarlíf, og eg treysti því að þessi við- leitni mín verði virt á betri veg, og að rit þetta fái ekki verri við- tökur hér á íslandi enn blaðið, Heims-kringla, fékk meðal íslendinga í Ameríku fyrir næstum 30 árum síðan, en þar gerðist næstum 20. hver maður kaupandi þess strax og Heims-kringla kom út. Sökum verðhækkunar á öllum ritföngum, pappír og prentun, getur rit þetta ekki orðið ádýrara en 75 aura eintakið eða 2 kr. hálft ár, nfl. 3 hefti, eða 3 kr. um árið, fyrr en það hefur um 600 kaupendur, sem borga það skilvíslega, helzt fyrirfram, né heldur get eg lofað að gefa það út meira en 6 mánuði, nema því verði mjög vel tekið og fái í það minsta 600 kaupendur fyrir 15. október þ. á. Allar pantanir og borganir sendist til mín eða þeirra útsölumanna er hér verða tilgreindir. VARNAGLI. Fái þetta fyrsta hefti svo vondar viðtökur hér á Akureyri og í Eyja- firði og Hörgárdal, þar sem eg er borinn og barnfæddur, að tekjurn- ar borgi ekki útgáfukostnaðinn, sem verður alt að 300 krónur, svo er óvíst eg gefi út meira enn annað hefti til, nema mér komi því betri hjálparmenn, því ekki vil eg rita mig blindan og setja mig í skuldir, bara til að segja fáein sannyrði, sem eg veit að margir aðrir geta sagt eins vel, ef þeir hefðu tíma og kringumstæður til þess, og ekki vil eg heidur að neinn geri það af meðaumkun eða í guðs-þakka skyni, að kaupa ritið, Fylkir, bara til að halda mér við líði og frá vergangi, því einu sinni verð eg að fara »heim« eins og aðrir. Eg vil að fólk kaupi Fylkir sökum þess, er hann segir, og vegna þess að hann getur sagt ýmislegt þarft, sem önnur tímarit vilja ekki eða nenna ekki að segja, og fréttablöðin hafa ekki rúm til að ræða eða skifta sér af, en sem

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.