Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 23
FYLKIR.
23
París; bara mean kunni að rækta jörðina, nota sjóinn og að beizla
aflið í fossum landsins og fljótum og beita því fyrir vélar. En til þess
verður þjóðin að leggja nokkuð á sig og láta uppvaxandi kynslóð læra
eitthvað annað en hégómlegan skáldskap, söng og málverk, þó það alt
geti skemt, eða þá villandi og skemmandi hjátrúar rugl og heimsku,
sem svo margir lesa nú og eyða æfinni til að lesa.
Eg rita annars með ró og jafnaðargeði um þetta mál, því nú er
þó hugur manna vaknaður fyrir aðal-velferðarmáli íslands, uppbyggingu
þess og innlendum iðnaði; því þótt Reykjavík og Akureyri liggi enn
afvelta, þá hafa þó Hafnarfjarðar-, Seyðisfjarðar-, Siglufjarðar og Pat-
reksfjarðar-menn haft vit, hug og dug til að setja upp elfírisstöðvar
hjá sér. Og Akureyri og Reykjavík koma líklega á eftir áður en mörg
ár líða.
II.
Athugasemdir
við
greinar peirra Guðmundar Hliðdals rafmagnsfrœðings,
Jóns Porldkssonar landsverkfrœðings og
Porkels Porkelsonar kennara.
Áður en eg get búist við að almenningur gefi nokkurn verulegan
gaum að því, sem eg kann að rita eða segja um afúð í grend við
Akureyri, og hvernig megi nota það, verð eg að sýna og sanna, eins
vel og með orðum er unt, að sá kjarni erindis míns, að rafmagnið
geti hér á íslandi orðið jafn ódýrt og hentugt til upphitunar íveru-
húsa eins og aðrar orkulindir, sé ekki eintómur hugarburður eða loft-
sjón, og að mótbárur þeirra, sem það hafa vefengt, eða því hafa mót-
mælt, séu á röngum grundvelli bygðar og þvi ósannar.
Pær ritgerðir, sem eg veit til að mæli á móti, að upphitun íveru-