Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 31
FYLKIR.
31
Relta er svo Ijóst, að hver sjáandi maður mun geta skilið sam-
hengið og hlutföllin milli þessara eíninga. — Aðeins ber þess að
geta, að einingin, kilógrammetri, er ekki orkueining, heldur vinnu-
eining; orkueining er kilógrammetri á sekundu; og svo svarar
1 hestafl rafurmagns ekki nú til vanalegu ensku afl einingnnni »horse-
power* (hestafl), sem gildir 550 fet-pund á sekundu, heldur franska
eimhest-aflinu (cheval-vapeur), sem gildir á við aðeins 500 fet-pund
á sekundu, þ. e. á við 75 kgs. metra. Enska hestaflið, »horse-
power* gildir fult tíunda hluta meira.
En í »111. þætti* (á víst að lesasi II.) greinar J. Þ. finn eg ýmis-
legt næsta athugavert, og bið lesarann að gæta þess vandlega með
mér. Höf. svarar hér spurningunni: »Hvað þarf mikið afl til þess
að framieiða nægilegt rafmagn handa einu heimili,« til ljósa á vetr-
um til matreiðslu og til að hita híbýli manna. Eg á ekki svo mjög
við það, að höf. telur á að það þurfi 25 16-k.ljósalampa fyrir hvert
sæmilega stórt sveitaheimili, þ. e. sama sem 1 hestafl rafurmagns —
það er nokkuð ríflega í lagt, en ekki beinlínis rangt. En eg á við
hvað höf. staðhæfir, þegar kemur fram i 3. lið þessa þáttar, þar sem
höf. ræðir um upphitun íveruherbergja með rafmagni, þá fer eg að
lesa hægra og fægja gleraugun til þess að mér skuli nú ekki mis-
sýnast og eg ekki lesi rangt, Þessi liður byrjar þannig:
„Upphiiun íveruherbergja. Par eru mikil vandkvæði á að segja
hve mikils afls er þörf, af því að stærð herbergja og hitunarþörf er
svo afarmismunandi. Til sveita eru kröfur manna til upphitunar ekki
miklar, og víðast hvar má komast af með að hita að staðaldri 1—2 herbergi.
Rafurmagnsofna má gera færanlega, svo að þeir verði fluttir úr
einu herbergi í annað og þess vegna mundi á flestum heimilum mega
komast af með 1 ofn, en á stórum heimilum með tvo ofna, ef ofn-
arnir eru í stærra Iagi og aflið svo mikið að ekki verði strax of kalt
f herbergi þó ofninn sé fluttur um stund í annað herbergi.
Eins og áður var getið fást úr hverju hestafli um 7 hitaeiningar
á hveri mínútu til eldunar, og verða það 420 hitaeiningar á hverri