Fylkir - 01.08.1916, Qupperneq 15

Fylkir - 01.08.1916, Qupperneq 15
FYLKIR. 15 en þó nokkrir þeirra gengu út að honum hálfnuðum til að hlusta á erindi, sem einn »lærði« maðurinn hérflutti fyrir »stúdentafélaginu« um afstöðu þjóðkirkjunnar gagnvart »andatrúnni«, að mig minnir. Rað fanst hinum »Iærðu« mönnum þessa kaupstaðar ólíkt þarfara að íhuga og ræða en það, hvar og hvernig mætti fá nægilegt afl til að rafhita þennan bæ og eins sveitabæi hér í grendinni langt um betur og ódýrar en nú gerist til jafnaðar. En verri upphitun íveruhúsa en hér er víða á Akureyri held eg óvíða finnist í heimi, né eins vond, ekki einusinni í París eða á Grænlandi, varla í Reykjavík nú, síðan hún fékk gasið. Og þó er það ekki af því, að ekki séu til kol eða eitthvert annað elds- neyti, heldur af því, að kol eru hér yfirleitt svo afardýr, að engir nema efnamenn geta staðið við að kynda svo dugi. Annar hængur á upphitun íveruhúsa hér í bæ eru lélegir og óbrúkandi ofnar, sem eyða feiknum af kolum, en gefa í staðinn reyk og ryk meir enn hita, og sá þriðji er gisin og illa bygð hús, sem aldrei verða hlý, hvernig sem kynt er á vetrum. En við þessu gerir heilbrigðisnefnd bæjarins ekki mikið, þó hún sé skipuð ágætustu mönnum bæjarins, og þótt börn og gamalmenni og margt miðaldra og hraust fólk veikist oft talsvert á vetrum af illri aðbúð, eitruðu lofti og kulda. Berklar þrífast vel í kolsýru og ryki. En um það leyti, sem eg hélt þessa fyrirlestra, voru, eins og allan síðast liðinn vetur, hljómleikir og sjónleikir haldnir á hverri viku, stundum tvisvar í viku, á stóra salnum í Goodtemplara-húsinu fyrir fullum sal, og auk þess voru kvik-myndir sýndar á »Bio« húsinu fyrir fjölda manns. Sá salur tekur um 150 — 200 manns. Goodtempl- ara-salurinn stóri tekur 500 manns. Þessa sali fylti Akureyri til að hlusta á sönginn og sjá leikina og kvikmyndirnar, en að eins 40 til 60 komu til að heyra mig segja það, sem eg bezt vissi um aflið hér í grendinni og um notkun þess. Þessar viðtökur sýndu mér Ijósar enn nokkur orð áhuga Akureyr- arbúa, þ. e. a. s. fjöldans, fyrir því, að byrjað yrði sem allra fyrst að hita þennan kaupstað með rafurmagni; og eins sýndi það mér, hvaða álit

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.