Fylkir - 01.08.1916, Síða 20

Fylkir - 01.08.1916, Síða 20
20 FYLKIR. áeggjun »kastað mér í sorpið«, þannig að hún hafði rofið alla samn- inga, sem hún hafði gert við mig 8. maí 1886, og gert mér ómögu- legt að prenta bók þá, sem hún hafði lofað að gefa út, og sem E. H. hafði sjálfur hjálpað til að íslenzka. Jú, eg hafði verið íslending- um til skammar í því að reyna að sjá um þá innflytjendur, sem B. L. Baldvinsson, agent stjórnarinnar, dumpaði niður hundruðum og þús- undum saman í Winnipeg, eftir að hafa leitt þá með fortölum sínum héðan og fengið góð laun og höfðapeninga fyrir, eins og Sigtryggur Jónasson. Reir félagar höfðu ekki verið íslandi til skammar, þeir E. H. og þeirra líkar voru lýtalausir. Svona vinsæll var eg í Winnipeg á meðal íslendinga á þeim árum, sem eg stofnaði Heims-kringlu, mestmegnis með eigin erfiði — ekki með hjálp þeirra ríkustu og efnuðustu manna þar; og þó var það blað ekki óþarft né ónýtt eða lyga-snepill þá. Og nú þegar eg kem til Norðurlands, til Akureyrar, sem er höfuð þess og heili, eru þeir fáir, sem þykir vænt um að eg er kominn úr »siglingunni«. Eg er orðinn gam- all og lotinn í herðum! Eg var lotinn þegar ungur. Og svo er eg »fá- tækur* ogekki »samvinnuþýður«, ogsumir segja reikull eða »reykulU— hvort það er rykugur eða hvikull eða hvorutveggja er mér ekki ljóst. Líklega er það ókostur að eiga ekki reit fyrir sig eða byrgi yfir sig, ef maður skyldi sitja hér lengur enn þetta sumar; en mér er sjálf- um alveg sama hvort bein mín liggja innan kirkjugarðs eða ekki. Eg býst við að liggja kyr þegar lífið er úti. -- Nei, vinsældum hef eg ekki átt að fagna hér né vestra, og það er ekki í vináttu skyni að eg vinn nú, né heldur af metorðagirnd. Það er lítil upphefð í því að vera fyrsta flón. — »Þetta mega nú allir hafa, sem ryðja nýjar brautir,« hafa sumir sagt eins og til að hugga mig. Eins og eg væri að ryðja nokkra nýja braut, þótt alt fsland fengi rafmagnsljós og hita á hverj- um kotbæ og í hverjum kaupstað, og eins og íslendingar yrðu þá verulegir oddvitar meðal þjóðanna, og ekki lengur eftirbátar þeirra né apar, — því íslendingar kunna þó að herma ýmislegt eftir öðrum þjóðum fult eins vel og negrar og betur en Indiánar og Lappar.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.