Óðinn - 01.07.1925, Qupperneq 16
64
ÓÐINN
Nína Sæmundsson.
í sumar keypti Listvinafjelagið í Reykjavík myndina
»Móðurást«, sem hjer er sýnd, af Nínu Sæmundsson
myndhöggvara. Dvaldi N. S. hjer um tíma í sumar
og kom með myndina. — N. S. hefur á síðari árum
dvalið í París. Þar var þessi mynd sýnd í vetur sem
leið, og fjekk mikið hrós. Myndin kostar, steypt í
bronse, 9000 kr. og hefur Listvinafjelagið fengið
loforð um nokkurn hluta kostnaðarins frá Alþingi.
Ekki er enn ákveðið, hvar myndinni muni valinn
staður, en sagt, að það muni verða á hinum væntan-
lega Landsspítala.
Óðinn flutti 1918 mynd af N. S. og fyrsta mynd-
höggvaraverki hennar, sem verulega athygli vakti, en
það var: Sofandi drengur. Síðan hefur hún leyst af
hendi mörg verk og farið víða um lönd. Hún hefur
verið á Italíu, á Spáni, suður í Marokkó og víðar.
En myndhöggvaranámið stundaði hún í Kaupm.höfn.
Nína Sæmundsson er ættuð austan úr Fljótshlíð og
þar upp alin. — Kom hún nú í sumar til æsku-
stöðvanna eftir margra ára úíivist.
Sl
Það glaðnar til.
Hypjast til háfjalls
hjelugráir
læðubólstrar
á logn-morgni; —
glens-miklir geislar
glaðrar sólar
gjöra þeim óvært
á undirlendi.
Svo dreyfast og dvína
döggvum slungin
harmský, er huldu
hugar-ljós. —
Lyfta nú ljúfir
ljósgeislar vorsins
hugsandi anda
til hásala guðs. Fnjóskur.
Nína Sæmundsson: Móðurást.