Óðinn - 01.07.1925, Síða 30
78
ÓÐINN
*
dáin 18. febr. 1917, Halldór f. 19. apríl 1907 og
Pjetur Stefán f. 12. maí 1911 í Hamborg.
Björg sál. var væn kona að áliti, björt yfirlitum
og skifti vel litum, í hærra lagi á vöxt og íturvaxin,
tíguleg og röskleg í fasi; hárið var mikið og fagurt,
bjart í æsku, en dökknaði með árum. Hún var alúð-
leg og látlaus í viðmóti, kát og skemtileg í viðræðu,
einörð og ákveðin í skoðunum, drenglynd, trygglynd
og örlynd. Húsmóðurstörf sín rækti hún með árvekni,
skörungsskap og lægni, og kunni góð skil á öllu, er
að þeim laut. Var heimili hennar til fyrirmyndar um
reglusemi, þrifnað og alla góða háttsemi. Hún var
góð og umhyggjusöm eiginkona, ástrík og fórnfús
móðir. Almennum málum fylgdi hún með áhuga og
skilningi, unni öllum nytsömum fróðleik og naut þess
alls vel, sem hún varð áskynja, hvort heldur af bók-
um, eða í viðræðum, enda var hún úrræðagóð um
hvað eina, sem til hennar ráða kom. — Það er
mikill missir að slíkum konum, og sárt að sjá henni
á bak. —
Guðrún ]örgensdóttir var fædd á Asi í Fellum 2.
júlí 1884. Foreldrar hennar eru hin nafnkunnu
merkishjón: ]örgen Sigfússon (bónda að Skriðu-
klaustri, Stefánssonar prests að Valþjófsstað, Arna-
sonar prófasts Þorsteinssonar að Hofi) þá bóndi að
Ási, og kona hans Margrjet Gunnarsdóttir (bónda að
Brekku í Fljótsdal, Gunnarssonar), og er hún ein
hinna mörgu Brekkusystkina, og eru nú að eins á
lífi, auk hennar, Gunnar H. Gunnarsson hreppstjóri
á Ljótsstöðum í Vopnafirði og Sigurður Gunnarsson
fyrv. prófastur í Stykkishólmi. Guðrún ólst upp á
heimili foreldra sinna og naut hins besta uppeldis.
Það mun hafa verið 1893, sem hún fluttist með for-
eldrum sínum að Krossavík í Vopnafirði. Haustið
1902 tók hún próf upp í 4. bekk Kvennaskólans í
Reykjavík, og lauk þar prófi vorið eftir með góðum
vitnisburði. Eftir það var hún um nokkur ár við far-
kenslu í Vopnafirði á vetrum og leysti það starf vel
af hendi, en hafði jafnan heimili sitt í foreldrahúsum.
— Sumarið 1911 hinn 8. júní giftist hún eftirlifandi
manni sínum Árna Steindóri Kristjánssyni (Árnasonar
bónda og hreppstjóra í Hvammkoti í Seltjarnarnes-
hreppi, Björnssonar prests að Þingvöllum, Pálssonar
prests að Þingvöllum, en móðir Steindórs er Stefanía
]óhanna Stefánsdóttir ]ónssonar, Stefánssonar bónda
að Egilsstöðum í Vopnafirði), þá bónda á Skjalþings-
stöðum í Vopnafirði, og bjuggu þau þar til vors
1918, er þau fluttust að Syðrivík í sömu sveit, næsta
bæ við Krossavík, og andaðist Guðrún þar 24. apríl
1923. Banamein hennar var hjartasjúkdómur. ]arðar-
för hennar fór fram 5. maí 1923, að viðstöddu miklu
fjölmenni. Þau hjónin eignuðust þrjú börn og lifa
þau öll móður sína: Ingibjörg fædd 9. apríl 1912,
Stefanía ]óhanna f. 18. júlí 1913 og ]örgen Gunnar
f. 11. marts 1915. Heilsulítið ómálga barn tók hún
til fósturs og annaðist það með ástúð og umhyggju-
semi eins og sín eigin börn.
Guðrún sál. var gerfileg ásýndum, nokkuð há vexti,
fremur feitlagin. Hárið var jarpt, talsvert hrokkið,
andlitið skarplegt, brosið hlýtt, svipurinn hreinn og
djarflegur og lýsti festu í skapsmunum samfara and-
legri göfgi. Hún var látlaus í framkomu, tíguleg í
fasi, alúðleg í viðmóti, ræðin, skýr og skemtileg.
Hún var gædd mjög góðum gáfum, hafði skarpa
dómgreind, gott minni, las jafnan mikið, enda var
hún fróð um flest, einkum ættfróð með afbrigðum.
Hún hafði talsverðan áhuga fyrir almennum málum
og fylgdist vel með þeim. Hún var vel að sjer til
munns og handa, fjölhæf í verki, starfsöm og mikil-
virk. — Heimili hennar var jafnan fjölment og bar
ljósan vott um gestrisni og skörungsskap húsmóður-
innar. Starfsemi, myndarskapur, reglusemi og hrein-
læti var þar í besta lagi, enda var það talið eitt hið
mesta myndarheimili sveitarinnar.
Vopnfirðingur.
SL
Dr. Björn Bjarnarson
frá Viðfirði.
Engann vissi jeg orðasnilling
annan fremri á voru láði;
skín í andans hárri hylling
hann, sem margur þekti’ og dáði.
Ritmál hans sem rastarflæði
rennur fram með þungum straumi.
Átti gnægð af festu’ og fræði
flughá sál í vökudraumi.
Helrún dauðinn honum risti, —
herti’ að brjósti sjúkdóms-okið.
ísland manninn átti, — og misti
áður en hann fjekk störfum lokið.
Pjetur Pá/sson.
SsL