Tölvumál - 01.11.1987, Page 25
að vera sem óháðust þeim tengibúnaði, sem fyrir vali
verður, hvort sem það eru hægvirkar brautartengingar eða þá
hægvirkar simalínur, þótt slikt hafi vitaskuld sin áhrif á
notkun og afköst búnaðarins.
Næst er að tiunda rök með og móti, þegar velja skal milli
miðlægs og dreifðs vinnslubúnaðar. Bjarni flokkaði röksemd-
irnar i fjóra flokka:
1) að heildarkostnaður verði sem hagstæðastur,
2) tæknileg atriði, svo sem góður svartimi, öryggi gagna,
jöfn dreifing álags o.s.frv.,
3) að umhverfi henti sem best til þróunar og gerðar
hugbúnaðar,
4) mannlegir þættir, svo sem völd stjórnenda.
Að þvi er varðar atriði 1), er það dreifðri vinnslu i hag,
að miðverk miðlungstölva eru stórum ódýrari en þegar stór-
tölvur eiga i hlut. Þróunartími minni tölvanna er auk þess
skemmri, þannig að nýrri og jafnframt ódýrari tækni getur
hverju sinni staðið til boða. Eins getur dregið úr sam-
skiptakostnaði; þau gögn, sem notandi vill sinna, getur
hann haft hjá sér. Öll uppsetning getur auk þess orðið mun
ódyrari.
í þessu sambandi má hins vegar telja miðlægri vinnslu
ýmislegt til kosta. Geymslukostnaður stórra gagnasafna
verður lægri á stóru diskunum. Nýting slikra gagna verður
þægilegri og ódýrari i stórtölvuumhverfi, þannig að i
slikum tilvikum getur rekstur orðið hagkvæmari.
Ef hugað er að 2), tæknilegum atriðum, er það dreifðri
vinnslu i hag, að svartími verður einatt styttri; notandi
hefur þá gögn sin innan skjótrar seilingar, ef kerfið er
vel úr garði gert, leitar uppi þann stað í netinu, þar sem
álag er minnst hverju sinni og lætur keyrslu fara fram þar.
Við bætist, að rekstraröryggi kerfisins getur verið
tryggara; miðverk eru fleiri en eitt, þannig að bregðist
ein tölva, er hlutum ekki stefnt i voða; þá getur önnur
tölva tekið við.
Öryggi gagnanna sjálfra verður þó óneitanlega tryggara i
miðlægum kerfum; þar er hægt að fyrirbyggja óæskilega
afritun gagna, sem vitaskuld er auðveldari, sé kerfið
dreift. í miðlægum kerfum er ein útgáfa af gögnum nýtt,
þannig að minni likur verða á ósamræmi og misvisun. Og
25