Tölvumál - 01.06.1988, Page 10
□ttar Kjartansson:
Fyrstu skýrslugerðarvélar íslands
Eftirfarandi grein birtist í TÖLVUMÁLUM árið
1977 um upphaf gagnavinnslu hér á landi. Óttar
Kjartansson tók saman. Hún er endurbirt hér
með góðfúslegu leyfi höfundar í tilefni 20 ára
afmælis Skýrslutæknifélagsins.
Það hljómar ótrúlega, nú á árinu 1977, að ekki
skuli vera nema þrettán ár síðan fyrsta gagna-
vinnslutölvan kom hingað til lands og að fyrir svo
sem aldarfjórðungi hafi tölvan almennt verið
álitin heldur vafasamt apparat, ef til vill fyrst og
fremst dýrt leikfang og ekki líklegt til afreka.
Saga gagnavinnsluvéla í heiminum spannar
a.m.k. eina öld og raunartalsvert lengri tíma, ef
miðað er við fyrstu tilburði manna til að smíða
reiknitæki.
Vinnsla upplýsinga í gataspjöldum var orðin
nokkuð almenn á fjórða áratugi þessarar aldar.
Hingað til lands bárust fyrstu eiginlegu gagna-
vinnsluvélarnar árið 1949. Hér á eftir eru tíndir
saman nokkrir fróðleiksmolar um þessarfyrstu
vélar:
Hagstofa l’slands varð fyrst aðila hérlendis til
að taka í notkun reiknivélar. í Hagtíðindum, 46.
árg., nr. 2, febrúar 1964, er 50 ára afmælis Hag-
stofunnar minnst og rituð saga hennar og
íslenzkrar hagskýrslugerðar.
Þar kemur fram, að það féll í hlut fyrsta hag-
stofustjórans, Þorsteins Þorsteinssonar, að
kaupa til landsins fyrstu reiknivélarnar árið
1914 og einnig, 35 árum síðar, að taka í notkun
skýrslugerðarvélar og hefja vinnslu upplýsinga
á gataspjöldum.
Þegar Þorsteinn ræðir um fámennt starfslið
Hagstofunnar fyrstu starfsárin, segir hann:
„Nokkuð bætti það þó úr skák, að við stofn-
un Hagstofunnar voru keyptar handa henni
tvær reiknivélar, önnur samlagningavél
skrifandi, sem aðallega var notuð við
úrvinnslu verslunarskýrslna, en hin marg-
földunar- og deilivél. Höfðu slík tæki eigi
áður verið notuð hér við hagskýrsiugerð.
Munu þetta vera hinar fyrstu reiknivélar, er
10//////////// TÖLVUMfiL
Óttar Kjartansson var rítarí í stjórn Skýrslu-
tæknifélagins 1975— 1983 ogábyrgðarmaður TÖLVU-
MÁLA í samfelld 7 ár. Hann starfar hjá Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkurborgar.
fluttust hingað til lands. Margföldunarvélin
nefndist Trinks-Brunsviga, og var hún bæði
stærri, þyngri og hávaðameiri en vélar þær,
sem nú eru notaðar, en hún var sterk og er
enn í notfæru standi."
Síðar í grein sinni um Hagstofuna 1914—1950
lýsir Þorsteinn aðdraganda að komu fyrstu
skýrslugerðarvélanna til íslands þannig:
„Sumarið 1947 kom hingað til lands norður-
landafulltrúi IBM félagsins í New York, sem
hefur með höndum framleiðsiu á afkasta-
miklum skýrslugerðarvélum. Samdist þá
svo um, að Hagstofan tæki á leigu eina sam-
stæðu af slíkum vélum, er nota mætti fyrst
og fremst við úrvinnslu verzlunarskýrslna,
við 10 ára manntalið o.fl. fyrir Hagstofuna,
en auk þess eitthvað fyrir aðrar stofnanir.
En vélar þessar voru ekki til sölu og áskildi
ÍBM sértveggja ára afgreiðslufrest á þeim.
Komu vélarnar hingað til lands sumarið
1949 og voru settar upp í Hagstofunni um
haustið og teknar í notkun. Það atvikaðist
því svo, að Hagstofan, sem við stofnun sína