Tölvumál - 01.06.1988, Side 14
heillaðir af þessum tæknibrögðum tölvanna
sem virðast lítil takmörk sett.
I þjóðfélagi nútímans, sem einkennist m.a. af
miklu rótleysi og miklum breytingum á hefð-
bundnum háttum fólks, skiptir miklu að við týn-
um ekki grundvelli okkar: tungu, sögu og bók-
menntum. Það er forsenda þess að við getum
lifað hér sem ein þjóð í sjálfsæðu ríki að við skilj-
um hvert annað og eigum sameiginlegan arf til
að varðveita og rækta. Tölvur og tækni eru og
eiga að vera þjónar okkar en ekki herrar. Upp-
lýsingatækni af öllu tagi er tæki, og það mjög
mikilvægt tæki, en ekki markmið í sjálfu sér.
Ég held að á næstu árum verðum við að leggja
áherslu á það í skólakerfinu að nýta til hins ýtr-
asta tölvuþekkingu okkar og tölvubúnað,
þ.á.m. möguleika upplýsingatækninnar. Það
þarf að kenna nemendum framhaldsskóia og
háskóla upplýsingafræði, sem svo eru nefnd,
svo þeir getir lært á tölvubanka. Það er ekki síð-
ur þýðingarmikið, að mínu mati, að atvinnulífið
njóti upplýsingafræðinnar, svo íslenskiratvinnu-
rekendur, hugvitsmenn og athafnamenn geti
notf ært sér alþjóðlega möguleika og sambönd til
hinsýtrasta, íslanditil hagsauka. Það ersannar-
lega verk að vinna.
Góðir ráðstefnugestir, ég veit að hér verða
flutt forvitnileg erindi um þróun upplýsinga-
tækninnar og þróun tölvunotkunar og áhrif
hennar á störf og þjóðlíf. Hér safna menn fróð-
leik og varpa fram hugmyndum til gagnrýninnar
athugunar. Það er einmitt þannig sem þekkingin
vex og dafnar og eflir síðan alla dáð.
Wlllllltllll TÚLVUMfiL