Tölvumál - 01.06.1988, Page 16
Gísli Már Gíslason:
Vinnustöðvar í náinni framtíð
Útbreidd skilgreining segir, að vinnustöð byggi á
32 bita tölvu með hágæðaskjá. Vél- og hugbún-
aður fyrir einfalda en öfluga nettengingu skal
vera fyrir hendi ásamt ríflegu innra minni. Sé
stöðin ekki nettengd, þ.e. ef hún er ekki hluti af
vinnukerfi, er krafist myndarlegs diskrýmis.
Vinnustöð skal bjóða upp á sýndarminni („virtu-
al memory") og víxlvinnslu verkefna („multita-
sking").
Vinnustöðvar samkvæmt ofangreindri skil-
greiningu hafa hingað til verið dýrar, og innlimun
þeirra í stærra vinnukerfi er ekki hnökralaus í
mörgum tilvikum. Einkum gildir þetta um stöðv-
ar frá framleiðendum, sem ekki þjóða upp á stór
fjölnotendakerfi.
Verð á vinnustöðvum hefur farið hríðlækk-
andi á síðustu misserum svo að nú er svo komið,
að þær geta farið að taka við hlutverki hinna
klassísku skjáa í fjölnotendakerfum. En þar sem
verð á „vitgrönnum" skjám fer iíka lækkandi,
verður ekki annað séð en að þeir hafi líka hlut-
verki að gegna næstu árin.
Við erum að fjalla um vinnukerfi. Vinnukerfi
samanstendur af mörgum vinnustöðvum, ein-
um eða fleiri miðlurum („server") og hugsanlega
hefðbundnu fjölnotenda skiptivinnslukerfi
(„time sharing system"). í vinnukerfi framtíðar-
innar geta ólíkar tölvur notað mismunandi stýri-
kerfi. Ef við tökum DEC sem dæmi, þá er um að
ræða VMS, Ultrix (DEC-útgáfan af UNIX), MS-
DOS og væntanlega OS/2 síðar. Vélbúnaður og
stýrikerfi verða valin með tilliti til hlutverks tölv-
unnar hverju sinni. Rauntímavinnsla kann að
krefjast annars stýrikerfis en ritvinnsla. En það
sem skiptir sköpum, er að vinnukerfi framtíðar-
innar bjóða notandanum upp á sama umhverfi á
öllum tölvunum. Notandinn verður ekki var við
stýrikerfið, eða réttara sagt hann þarf þess
ekki. í mörgum tilvikum hefur hann ekki hug-
mynd um hvaða tölva eða stýrikerfi liggur að
baki viðfangsforritsins, sem hann er að nota.
Tölvuframleiðendur framtíðarinnar (þeir fáu,
sem lifa af samkeppnina) útbúa sínar tölvur not-
enda- og þróunarumhverfi, sem gerir hugbún-
Gísli Már Gíslason er markaðsstjórí tölvudeildar
Krístjáns Ó. Skagfjörð hf. Gísli er verkfræðingur að
mennt og hefur unnið bæði að tæknilegum og við-
skiptalegum verkefnum. Eríndi Gísla fjallaði um vinnu-
stöðvar, enda er hann fróður um það mál.
aðarframleiðendum kleift að skrifa sín viðfangs-
forrit óháð stýrikerfum.
Ástæðan fyrir vaxandi hlutverki vinnustöðva
er að sjálfsögðu sú, að notandinn fær aukna
vinnslugetu á borðið hjá sér. f stærri vinnukerf-
um verða sérlegir miðlarar, sem hafa það hlut-
verk að veita notendum kerfisins aðgang að
miðlægum upplýsingum (skrár) og jaðartækj-
um, einkum dýrum búnaði eins og hraðvirkum
geislaprenturum og teiknurum. Þannig geta
vinnustöðvarnar verið án eigin diskrýmis og þar
af leiðandi ódýrari en ella.
Til hvers verða svo vinnustöðvarnar notað-
ar? Þær verða notaðar eins og venjulegir skjáir í
dag. En þær gegna líka öðrum hlutverkum, hlut-
verkum sem sum eru alls ekki ný af nálinni. Þar
má nefna myndræna tölvuvinnslu af ýmsu tagi,
svo sem tölvustudda hönnun og viðskipta-
grafík. Alvöru teiknivinnsla er reyndar illfram-
kvæmanleg án vinnustöðva. Þá má nefna rit-
16//////////// TÚL VUMfiL