Tölvumál - 01.06.1988, Page 18
Guðmundur Hannesson:
Megintölvur eiginleikar og hlutverk
Megintölvur eða stórtölvur eru ekki aðeins stór-
ar tölvur heldur er eðli þeirra og uppbygging
verulega frábrugðin einmenningstölvum og
meðalstórum tölvum. Auk þess að geta unnið
hratt og örugglega, anna megintölvurnar oftast
mörgum notendum og hafa mikið af gögnum
undir í senn. Megintölvurnar þurfa og að vera
jafnvígar á sívinnslu og runuvinnslu. Með háþró-
aðri tækni í rökrásum og minnisflögum megin-
tölvanna má ná hraða og þar með afköstum. En
það þarf meira til. Hönnun megintölvanna og
byggingarlag ráða í raun úrslitum.
Auk miðverks hafa flestar algengustu teg-
undir megintölva margar sérhæfðar tölvur er
sjá um boðskipti við jaðartæki, s.k. boðrásir.
Auk aðalminnis eða vinnsluminnis er sérstakt
hraðminni sem „matar" miðverkið á gögnum.
Nýjustu gerðir megintölva hafa sérstakt viðbót-
arminni (Expanded Storage), sem geymir bið-
röð gagna fyrir vinnsluminnið.
Því þéttar sem einstökum einingum tölvunnar
er pakkað saman því hraðari verða boðskipti
milli eininganna og afköst tölvunnar aukast. Við
þetta myndast mikili hiti á litlu svæði. Því hefur á
síðustu árum verið lögð geysileg áhersla á
varmaflutnings- og kælibúnað megintölvanna.
Öll þessi háþróaða tækni kostar mikið. Því
skiptir það meginmáli fyrir þá sem fjárfesta í slík-
um búnaði að „brókin vaxi með barninu". Al-
gengt er að notendur megintölva reikni með
árlegum vexti í tölvuverkefnum er nemur 30 til
50 af hundraði.
Til þess að mæta slíkum vexti hafa tölvufram-
leiðendur lagt sífellt meira kapp á að varðveita
byrjunarfjárfestingu tölvukaupenda.
Dæmi um slíkt kerfi megintölva er IBM 3090
fjölskyldan. Minnsta tölvan 3090—120E er með
eitt miðverk, hámark 32 MB vinnsluminni, 128
MB viðbótarminni og 24 boðrásir fyrir jaðar-
tæki. Vélagerðarbreyting í 1 50E gefur afkasta-
aukningu er nemur um 35 af hundraði. við slíka
breytingu er einungis skipt út hluta miðverks.
Allur annar búnaður, jaðartæki og stjórnkerfi er
óbreytt. Síðan má stækka koll af kolli. Stærsta
tölvan í fjölskyidunni er IBM 3090—600E sem hef-
18//////////// TÖLVUMÖL
Guðmundur Hannesson er rekstrarhagfræðingur og
starfar á markaðssviði hjá IBM á íslandi. Guðmundur
hefur bæði fjallað um stórtölvur og smátölvur. Hann
hefur góða yfirsýn yfir eiginleika þeirra og hlutverk,
eins og fram hefur komið í skrifum hans.
ur sex miðverk. Hámarksvinnsluminni er 256
MB, viðbótarminni 2048 MB og boðrásir 128.
Þessi tölva er u.þ.b. 10 sinnum afkastameiri en
120E.
Allar tölvugerðirnar nota sama stjórnkerfið
MVS/XA.
Því er það vart tilviljun að bæði nýju alþjóða
flugbókunarkerfin, Amadeus og Galileo, munu
vinna á IBM 3090 samstæðum. Hér á landi nota
Skýrr og Reiknisstofa bankanna 3090 megin-
tölvur sem hvor um sig þjónar á annað þúsund
sívinnslunotendum.
Stundum er því haldið fram að með auknum
afköstum einmennings- og meðalstórra tölva
og sífellt fullkomnari samskiptatækni séu dagar
megintölvanna taldir. En svo er ekki. Megintölv-
ur eru ákjósanlegar til þess að varðveita gögn
og miðla þeim. Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri
Skýrr hefur lýst notagildi miðlægra gagna á
eftirfarandi hátt: