Tölvumál - 01.06.1988, Side 21
Jóhann Gunnarsson:
Framtíðarsýn og þráun
í upplýsingatækni og staða íslands í þeim efnum
í átt að opnu samskiptaumhverfi
Þrennt mun öðru fremur einkenna þróun gagna-
samskipta næstu árin, og er þá talað í víðu sam-
hengi:
— Margs konar ný þjónusta verður í boði, efld af
tækninýjungum,
— áhersla á stöðlun og samræmingu, misræmi á
milli landa verður jafnað,
— markaðurinn verður opnaður og einkaréttur
símayfirvalda að mestu afnuminn.
Framfarir í fjarskipta- og tölvutækni og aukin
alþjóðleg samvinna hafa leitt í ljós ýmsa van-
kanta þess skipulags, sem ríkt hefur bæði hér á
landi og reyndar víða um heim, og margir kenna
við einokun. Símayfirvöld hafa afmarkað sér
vítt áhrifasvið en veita takmarkaða þjónustu,
og fylgja sjaldnast nýjungum nægilega fast á
eftir. Því hafa bæði framleiðendur og notendur
neyðst til að þróa sína eigin staðla og
samskiptaaðferðir. Niðurstaðan er sú, að
minnsta kosti á gagnasamskiptasviðinu, að
enda þótt unnt sé að vísu að tengja tölvur sam-
an yfir landamæri, geta menn einungis með
herkjubrögðum og vissum skilyrðum átt gagn-
leg samskipti.
Víða um lönd er markvisst unnið að kerfis-
breytingum í því skyni að ryðja burtu hömlum á
samvinnu, auka þjónustuframboð og setja
staðla. Evrópubandalagið gaf á miðju síðasta ári
út svonefnda græna skýrslu um þróun sameig-
inlegs markaðar fyrir fjarskiptaþjónustu og
búnað. Ég hygg að tillögur hennar séu dæmi-
gerðar fyrir þessa þróun. Mig langar því að rifja
upp nokkur helstu áhersluatriðin:
— Allur endabúnaður notenda (terminal equip-
ment), þar á meðal símar og gervitunglajarð-
stöðvar, sem eingöngu eru fyrir móttöku
efnis, verði fáanlegur á frjálsum markaði og
ekki háður öðrum takmörkunum en tegunda-
prófun.
— Símayfirvöld skuldbindi sig til að tengja kerfi
sín kerfum óháðra þjónustuaðila, þótt yfir
landamæri sé farið.
— Skýrt verði skilið á milli þess hlutverks síma-
Jóhann Gunnarsson er deildarstjórí Fjáríaga- og
hagsýslustofnunar. Hann var áður framkvæmdastjórí
Reiknistofnunar Háskóla ísiands og þar áður starfaði
hann lengi hjá IBM. Jóhann hefur fylgst vel með þróun
tölvuneta, m. a. vegna samstarfs við Norðurlönd á því
sviði. Hann er formaður SURÍS, Samtök um upplýs-
inganet rannsóknaraðila á íslandi. Jóhann hefur ritað
margar greinar í TÖLVUMÁL frá stofnun blaðsins og
situr nú í ritnefnd.
yfirvalda að setja reglur og líta eftir framfylgd
þeirra annars vegar, og rekstrarhlutverks
hins vegar.
— Hraðað verði framkvæmd alþjóðlegra áætl-
ana um samræmda innri uppbyggingu net-
kerfa á bandalagssvæðinu, þar á meðal um
breiðbandsnet og ISDN.
— Sérstakt átak verði gert í þróun og beitingu
staðla.
I gagnaflutningsnetum er hið opna, staðlaða
samskiptaumhverfi OSI lykilatriði. Samvinnu-
verkefnið COSINE, sem ísland tekur þátt í,
gengur út á það að hraða undirbúningi og hefja
rekstur samskiptaneta, er byggi á OSI. Enda
þótt COSINE sé í fyrstu ætlað að bæta úr brýnni
þörf vísindamanna og háskóla, mun árangur
starfsins fljótlega nýtast öðrum notendum.
TÚL VUMftL//////////// 21