Tölvumál - 01.06.1988, Side 23
□r. Snorri Rgnarsson:
Menntun fomtara
Hugbúnaðarkreppan
Hin síðustu ár hefur vélbúnaður lækkað ört í
verði og hugbúnaður því orðið hlutfallslega dýr-
ari. Hefur ástand þetta magnast svo mjög að
fólk er farið að gefa því nafn og kalla það hug-
búnaðarkreppu.
Afkastaaukandi hugmyndir
Betri hugmyndir og betri verkfæri leiða til lækk-
unar á hugbúnaðarkostnaði. Við höfum þegar
séð slíka þróun. Hugbúnaðarkostnaður hefur
lækkað verulega frá þeim árum þegar öll forrit
voru skrifuð í vélamáli. Fyrst með tilkomu
smala, síðan þýðenda. Þessi tól voru bylting á
sínum tíma og sögðu sumirjafnvel að hugbúnað-
arvandamálið væri leyst með þeim. Sumir köll-
uðu jafnvel þýðendur „sjálfvirka forritara". En
nú ættum við að hafa lært að slík verkfæri valda
því ekki að forritarinn verði óþarfur heldur þvert
á móti leiða þau til þess að við gerum enn meiri
kröfur til hans. Þegar forritarinn fær betri tól
verður hann afkastameiri og getur leyst fleiri
vandamál en vinna hans verðurekki auðveldari.
í fyrirsjáanlegri framtíð kemur ekkert í stað-
inn fyrir vel menntaða forritara. Forritun er erf-
itt og krefjandi starf. Kannanir hafa sýnt að góð-
ur forritari er margfalt afkastameiri en lélegur.
Framtíðin
Telja má að í nánustu framtíð muni tvær hug-
myndir valda mikilli afkastaaukningu í forritun.
Þær eru listavinnsla og einingaforritun.
Með einingaforritun er átt við aðferðir til að
skipta forritum upp í vel skilgreinda hluta sem
síðan eru smíðaðir sjálfstætt. Tækni þessi er
erfið og krefst mikils af forritaranum, en ávinn-
ingurinn er mikill. Með listavinnslu erátt við sjálf-
virka minnismeðhöndlun. í forritunarmáli sem
býður upp á listavinnslu má úthluta minnissvæð-
um að vild og tölvan sér um að skila þeim aftur
þegar þau eru ekki lengur í notkun.
Listavinnsla er skilyrði fyrir góðri einingafor-
Snorri Agnarsson er dósent í tölvufræðum við
Háskóla íslands. Hann hefur búið til fyrsta íslenska
forritunarmálið, FJÖLNIR, sem er mjög merkilegt
framlag til tölvumála hér á landi. Snorrí situr í stjórn
Skýrslutæknifélagsins.
ritun. Góð einingaforritun er grundvölluð á sér-
tekningu (e. abstraction) og upplýsingahuld (e.
information hiding). Listavinnsla gerir kleift að
hanna forrit byggð á þessum hugmyndum.
Mörg forritunarmál bjóða nú upp á lista-
vinnslu. Sem dæmi má nefna LISP, PROLOG og
SmallTalk. Þessi forritunarmál eru helst þekkt
sem forritunarmál fyrir gervigreind. Þau eiga
ekkert sameiginlegt annað en listavinnslu.
Ástæðan fyrir því að þau eru öll notuð til að leysa
flókin vandamál er einmitt listavinnslan.
Niklaus Wirth, hönnuður forritunarmálanna
Pascal og Modula-2, hefur nýlega kynnt nýtt
forritunarmál, Oberon. Tíminn mun leiða í Ijós
hvort Oberon nær almennri útbreiðslu, en Ijóst
er að þekking á iistavinnslu og einingaforritun
verður forriturum nauðsynleg í nánustu
framtíð.
TÚL VUMfiL//////////// 33