Tölvumál


Tölvumál - 01.06.1988, Side 26

Tölvumál - 01.06.1988, Side 26
□r. Jón Þór Þórhallsson: Er skrifstofusjálfvirkni úrelt? Hvað er skrifstofusjálfvirkni? Orðið kemur ekki fyrir í orðabók Menningarsjóðs. En sjálfvirkni er þar að finna og er skýrt þannig, að það sé að vera sjálfvirkur um vél eða tæki, sem vinnur fyrirfram ákveðin verk undir stjórn sérstaks vélbúnaðar. En ef þetta er skrifstofusjálfvirkni, þá ber ekki mikið á henni á skrifstofum í dag. Ætli það sé af því, að fyrirtækin hafi ekki náð tökum á sjálfvirkninni, hafi dregist aftur úr og séu úrelt. Nei, það er miklu fremur skilgreiningin sjálf, sem er úrelt. Við þurfum því nauðsynlega að endur- skoða hana og færa í nútímalegt horf. Þá þarf að taka tillit til þeirra tækniframfara, sem hafa átt sér stað og breyttra hugmynda um starfshætti og vinnuaðstöðu á skrifstofum. Einnig verður að gæta þess, að ástkæra ylhýra málið verði ekki undir í sjálfvirknivæðingunni á skrifstofum. En það er ekki bara á íslandi, sem verið er að endurskoða skilgreiningu orðsins skrifstofu- sjálfvirkni. Aðrar og stærri þjóðir eru að fást við það líka1. En allar þessar endurskoðanir ber að sama brunni, sem sé að tæknin ein leiði ekki til aukinnar sjálfvirkni á skrifstof um. T æknin þarf á manninum að halda til að ákveða hvað gera skal. Hún er verkfæri mannsins, sem flýtir fyrir honum og bjargar honum frá því að drukkna í flóði talna og upplýsinga. Það má kalla þetta verkaskiptingu milli mannsins og tækninnar. Sjálfsagt mun þessi verkaskipting eitthvað breytast með tímanum og meiri framförum. En það er ekki bara tæknin, sem mun þróast. Kyn- slóðin sem elst upp við upplýsingatækni, mun hafa aðra afstöðu til tækninnar og gera meiri kröfur til hennar sem hjálpartækis en sú sem varð að tileinka sér hana á fullorðinsárum. Tæknin mun bjóða nýjungar, sem jafnvel er erf- itt að láta sig dreyma um í dag. Gervigreindin svokallaða mun þó skipta miklu máli og gera tæknina að mun betra hjálpartæki en hún er nú. Mikil áhersla verður lögð á að gera tæknina aðgengilegri og meðfærilegri en við eigum að venjast. Fólk mun ekki miklu lengur sætta sig við alla þá „latínu" sem tækni og tölvur láta frá sér fara. Hvert forrit er með sína eigin fram- setningu skjámynda og leiðbeininga. Framsetn- 26//////////// TÚL VUMfiL Dr. Jón Þór Þórhallsson er forstjóri SKÝRR og dósent í upplýsingatækni við Viðskipðtadeild Háskóla íslands. Hann var formaður Skýrslutæknifélagsins frá 1979til 1983. Jón hefur mikla Þekkingu á tölvutækninni og notkun hennar. Hann hefur ritað margar greinar um upplýsingamál. Sjálfvirkni í skrifstofum og þáttur tölvunnar þar íhefur verið sérstakt áhugaefni hans að undanförnu. ingar eru nú næstum því jafnmargar og forritin eru mörg. í vaxandi mæli gerirfólk kröfur um, að framsetningarmátinn sé svipaður, þannig að það sem menn læra og temja sér í einu forriti nýtist í því næsta líka. Viðbrögð framleiðenda hljóta því að verða stöðlun á framsetningu skjá- mynda og annars úttaks. í allri þjónustu er að verða áherslubreyting í þá átt að spara við- skiptamanninum sporin. Stefnan hlýtur að vera sú, að afgreiðsla fari helst fram á einum stað. Sami starfsmaðurinn þarf því f rá sinni vinnustöð að hafa aðgang að mörgum hefðbundnum töivu- kerfum og geta fært sig milli þeirra fljótt og fyrir- hafnarlaust. Og frá sjónarhóli starfsmanns þarf þetta að verða eitt heillegt kerfi, upplýsinga- kerfi starfsmannsins. Hvað viðkemur þægind- um og meðfærileika, er enginn vafi á því, að sú

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.