Tölvumál - 01.06.1988, Page 29
áfram í sama farinu, verður innfluttur hugbún-
aður ráðandi hér innan fárra ára.
Með tilkomu einmenningstölvunnar áttu
menn von á því að verulega drægi úr notkun
stórra tölva, en þvert á alla spádóma hefur þró-
unin orðið þveröfug. Stöðugt eru gerðar meiri
kröfur til öflugrar miðeiningar, sem kjarna í
heildar tölvukerfi, sem skjáir, einmenningstölv-
ur og aðrar tölvur tengjast við. Þessi þróun mun
halda áfram, aðeins í mismunandi útfærslum
eftir þörfum hvers og eins. í stað eins stórs
tölvukerf is munu koma stór kerf i af tölvum. Svo
vitnað sé til hinnar merku konu Grace Hooper,
sem um áratugaskeið var í fararbroddi þessarar
tækni, „að þegar uxinn gat ekki lengur dregið
plóginn, reyndi bóndinn ekki að rækta stærri
uxa, hann notaði bara tvo.“
Frá afmælishátíð Skýrslutæknifélagsins 6. apríl 1988. Að lokinni ráðstefnu voru bornar fram veitingar í boði
menntamálaráðherra, Birgis ísleifs Gunnarssonar.
TÖLVUMtiU/////////// 29